Læknaneminn - 01.04.2005, Qupperneq 18
Primum non nocere
áhugasvið mitt er tiltölulega breitt. Þetta nám á þó vel við mig
þannig að ég er afar sáttur við inntökuprófin. Að sjálfsögðu
kemur mun breiðari hópur inn í deildina og þeir sem reyna við
inntökuprófin en ná þeim ekki þurfa ekki að naga sig í handar-
bökin vegna tapaðs tíma. Einnig hef ég það á tilfinningunni að
álagið og andrúmsloftið í clausus hafi farið illa í margan manninn
og oft skilið eftir sár á andlegri heilsu fólks til styttri eða lengri
tíma (alls ekki algilt). En hópurinn sem kemur úr inntökuprófum
er breiður, of breiður kannski, þar sem margir falla út, eru ekki
tilbúnir í svona hark eða finnast fræðin ekki eiga við sig. Þetta
fólk tekur sæti annarra sem hafa mikinn áhuga á læknisfræðinni
og myndu sóma sér vel sem nemendur innan deildarinnar. Afföll
eru of mikil eins og staðan er í dag, spurning hver lausnin sé. Ég
tel clausus ekki vera svarið, ein leið gæti verið að stækka hópinn
sem kemst inn þar sem það hefur sannað sig í nágrannalöndum
að stór prósenta fellur út á fyrstu árunum í námi eftir inntökupróf.
2. Hvert er þitt álit á breyttu kennslufyrirkomulagi í læknadeild?
Ég er maður blokkakerfisins, finnst það afar hentugt, gott
aðhald og dreifir álagi, þ.e. minni möguleiki að missa sig í kæru-
leysi til lengri tíma. Skipting námsskeiða er þó ekki nægilega
góð, þar sem langir kúrsar virðast skiptast ójafnt niður á annir.
Áætlanir varðandi styttingu náms voru illa framkvæmdar, þar
sem engin samskipti virðast hafa verið á milli „innsta hrings"
deildarinnar og kennara sem fengu skilaboð um að minnka
námsefni í kúrsum vegna þess að einingum var fækkað. Kenn-
arar gerðu það hins vegar ekki. Tími nokkurra faga hefur því
skerðst en efni haldist óbreytt og myndar það mikið álag á
nemendur. Stytting náms í rúm 5 ár reyndist svo ólögmæt, það
tók óeðlilega langan tíma að skýra frá og bregðast við þeirri
niðurstöðu. Mér finnst ekki vera skipulagt nógu langt fram í
tímann þar sem stjórnendur hafa sagt sjálfir að ekkert sé öruggt
í kennslumálum fyrr en kennslu er lokið.
3. Hvernig finnst þér álagið á þig og samnemendur þína í náminu?
Álagið er alltaf til staðar, en mismikið, einum of mis. Álaginu er
afar illa skipt milli blokka, og nýja fyrirkomulagið því illa nýtt.
Þetta virðist vera að fara batnandi ef við lítum á fyrsta ár í dag.
Með betri samskiptum og skipulagi mætti fullnýta kosti þessa
kerfis sem eru örugglega margir og eru skref í rétta átt að breyttu
kennslufyrirkomulagi.
4. Hvað ertu ánægður með og hvað ertu óánægður með í náminu í
heild?
Það mættu vera meiri samskipti milli ára, sem og nema, kenn-
ara og „innsta hrings" deildarinnar. Það er erfitt að vera fórnar-
lamb nýjunga og breytinga en mér finnast margar breytinganna
vera til góðs, t.d. meiri áhersla á samskiptahæfni og að nemar
kynnast verklegu námi og aðstæðum á framtíðarvinnustöðum
mun fyrr.
5. Hefur þú einhver skilaboð tii fulltrúa nemenda í Kennsluráði?
Þið eruð frábær, þið standið ykkur vel. Ekki bara kvarta, upp
með hnefann og róttækar aðgerðir gegn daufdumbum „innsta
hring“. Þið hafið kraftinn.
Ásthildur Erlingsdóttir, nemi á 3. ári
1. Hvert er þitt álit á breyttu kennslufyrirkomulagi i læknadeild?
Ég er ósátt við að þessum breytingum skyldi vera hrint í fram-
kvæmd strax en ekki beðið eftir nýjum árgöngum sem komust
inn í deildina með inntökuprófum og hófu nám á þessum
forsendum. Mér finnst mjög skrýtið að þjappa saman þremur
önnum á eitt ár eins og gert hefur verið á þriðja árinu og einu
rökin sem ég hef heyrt fyrir þessu eru að verið sé að „virkja óþol-
inmæði kennara0. Mér finnst það persónulega óásættanleg rök
og hef það engan veginn á tilfinningunni að verið sé að bæta
mitt nám með þessum aðgerðum.
2. Hvernig finnst þér álagið á þig og samnemendur þína í náminu?
Mér finnst það allt of mikið og fara vaxandi eftir því sem lengra
líður. Það má aldrei neinn tíma missa og ef eitthvað kemur uppá
hjá manni þá er lítið svigrúm til þess að takast á við það.
3. Hvernig sérðu fyrir þér árin fram að útskrift?
Mér hrýs hugur við fjórða árinu sem ég á framundan núna
næst. Mér finnst það nánast dónalegt að ætlast til viðveru sem
svarar til vel rúmlega fullrar vinnu og búast við því að maður geti
síðan flett í gegnum alla kírurgí og medicín svona í hjáverkum.
Ég hefði haldið að það væri augljóst að þetta eru ósanngjarnar
kröfur og mikið tillitsleysi gagnvart nemendum og okkar einkalífi.
Svo verður framhaldið bara að koma í Ijós.
4. Hvað ertu ánægð með og hvað ertu óánægð með í náminu í heild?
Almennt finnst mér kennslan fín og það eru margar góðar
hugmyndir í gangi, s.s. PBL og umræðutímar sem nýtast yfirleitt
vel og vekja áhuga manns. Það er greinilegt að margir kennarar
eru mjög metnaðarfullir í sínu starfi og eru tilbúnir að vera okkur
nemendum innan handar ef á þarf að halda. Það skilningsleysi
og sú vanvirðing sem ég upplifi í gegnum þessar breytingar sem
nú eru í gangi varpa hins vegar mjög stórum skugga á það
hvernig ég hugsa um námið mitt hérna. Þess ber þó að geta að
kennsluráð hefur verið mjög almennilegt við að hnika til tíma-
setningum eftir okkar athugasemdum. Mér finnst það samt ekki
eiga að vera hlutverk okkar nemenda að þurfa sífellt að hafa
varann á gagnvart skipulaginu og benda á atriði sem augljóst
ætti að vera frá upphafi að myndu ekki ganga upp.
5. Hefur þú einhver skilaboð til Kennsluráðs?
Kannski benda þeim á að það eru bara 24 tímar í sólar-
hringnum og ég hef komist að því að hvernig sem maður remb-
ist þá fjölgar þeim ekki neitt. Og það kemur metnaðarleysi eða
leti alls ekkert við.
Kristinn Logi Hallgrímsson, nemi á 4. ári
1. Hvert er þitt álit á breyttu kennslufyrirkomulagi í læknadeild?
Til að byrja með er álit mitt á því hvernig fyrirkomulaginu var
komið á, ekki gott. Okkar ár lenti í miðjum breytingum og því
hafa verið nokkur átök um þær. Að mínu mati eru góðu hliðarnar
þær að gangi markmiðin eftir skila þær nemendum fyrr í klínískt
LÆKNANEMINN
2005