Iðjuþjálfinn - 2023, Side 12
Iðjuþjálfinn I Fagblað iðjuþjálfa I 1. tölublað 2023 12
PHYSICAL AND OCCUPATIONAL THERAPY IN PEDIATRICS
Leosdottir, T., Egilson, S. T. og Georgsdottir, I. (2005). Performance of extremely low birthweight children at 5 years
of age on the Miller Assessment for Preschoolers. Physical & Occupational Therapy in Pediatrics, 25(4), 59–72. FÆR
OCCUPATIONAL THERAPY IN MENTAL HEALTH
Ásmundsdóttir, E. E. (2009). Creation of new services: Collaboration between mental health consumers and
occupational therapists. Occupational Therapy in Mental Health, 25(2), 115–126. ÞJÓN
ASIAN JOURNAL OF OCCUPATIONAL THERAPY
Higashi, Y., Takabatake, S., Matsubara, A., Nishikawa, K., Kaneda, T., Nakaoka, K., Somei, Y. og Árnadóttir, G. (2023).
Neurobehavioral Impairment Scale of the A-ONE J: Rasch analysis and concurrent validation. Asian Journal of
Occupational Therapy, 19(1), 30–37.
ARM
HONG KONG JOURNAL OF OCCUPATIONAL THERAPY
Higashi, Y., Takabatake, S., Matsubara, A., Nishikawa, K., Shigeta, H. og Árnadóttir, G. (2019). Reliability and validity
of the Japanese version of the ADL-focused Occupation-based Neurobehavioral Evaluation (A-ONE J): Applying
Rasch analysis methods. Hong Kong Journal of Occupational Therapy, 32(1), 32–40.
ARM
Flestar greinanna fjölluðu um þjónustu iðjuþjálfa (ÞJÓN),
aðferðafræði eða rannsóknir á matstækjum (ARM) og þátt-
töku og umhverfi (ÞU), álíka margar í hverjum flokki. Fjórtán
greinar sneru að þjónustu iðjuþjálfa með einum eða öðrum
hætti, þar af birtist helmingurinn í Iðjuþjálfanum. Oftast var
um að ræða rannsóknargreinar þar sem rýnt var í upplýsingar
frá notendum, svo sem grein Elínar Ebbu Ásmundsdóttur
(Ásmundsdóttir, 2009) og Sólrúnar Óladóttur og Guðrúnar
Pálmadóttur (Óladóttir og Pálmadóttir, 2017) eða frá starfsfólki
(t.d. Ásdís Sigurjónsdóttir o.fl. 2019; Hulda Þórey Gísladóttir
o.fl., 2020). Í stöku tilvikum var bæði byggt á upplýsingum frá
notendum og starfsfólki svo sem í grein Söru Stefánsdóttur
og Snæfríðar Þóru Egilson (Stefánsdóttir og Egilson, 2016).
Einnig voru dæmi um greinar þar sem upplýsingum úr fleiri
rannsóknum var teflt saman, svo sem í grein Guðrúnar Pálma-
dóttur (2004). Þrjár greinar fjölluðu um þjónustu við börn en
hinar 11 um þjónustu við fullorðið fólk.
Því næst komu greinar sem fjölluðu um þýðingu, staðfæringu
eða aðrar rannsóknir á matstækjum (ARM) eða 13 greinar alls.
Matstækin beindust flest að færni og þáttum sem hafa áhrif
á færni. Flestar greinanna sneru að réttmætisathugunum á
og notagildi A-One hér á landi og víðar eða sex greinar alls
(Árnadóttir, 2017; Árnadóttir og Fisher, 2008; Árnadóttir
o.fl., 2012; Gardarsdóttir og Kaplan, 2002; Higashi o.fl. 2019;
Higashi o.fl., 2023). Umfjöllun um A-One er einnig miðlæg í
grein Guðrúnar Árnadóttir (2008) en þar er jafnframt fjallað
um önnur matstæki sem byggja á áhorfi svo sem AMPS.
Önnur matstæki sem fjallað var um byggðust á upplýsingum
frá notendum eða aðstandendum þeirra og beindust að þátt-
töku og færni. Fjórar greinar fjölluðu um rannsóknir og stað-
færingu á MOHO-matstækjum í íslensku og erlendu samhengi
(Antwerp o.fl., 2016; Fenger og Kramer, 2007; Kristjana Fenger
o.fl., 2020; Sigurðardóttir o.fl., 2022) og notagildi þeirra.
Undir þennan flokk settum við einnig grein Sigrúnar Kristínar