Iðjuþjálfinn - 2023, Side 16

Iðjuþjálfinn - 2023, Side 16
Iðjuþjálfinn I Fagblað iðjuþjálfa I 1. tölublað 2023 16 matstækja geta ráðið miklu um ákvarðanatöku og faglegar áherslur þannig að mikið er í húfi. Af einstökum matstækjum tengdust flestar greinarnar uppbyggingu, þróun og notagildi A-One með einum eða öðrum hætti líkt og fram hefur komið og sjá má í töflu 1 (Árnadóttir, 2017; Árnadóttir og Fisher, 2008; Árnadóttir o.fl., 2012; Gardarsdóttir og Kaplan, 2002; Higashi o.fl., 2019; Higashi o.fl., 2023). Tvær þeirra fjalla um réttmætis- athuganir og Rasch greiningu á japanskri útgáfu þess (A-ONE J) (Higashi o.fl., 2019; Higashi o.fl., 2023) en matstækið hefur mikið verið notað í norðaustur Asíu. Athygli vekur hve margar greinar fjalla um þátttöku og umhverfi og er það líkast til í takt við þróunina innan iðjuþjálfunar og iðjuvísinda þar sem síaukin áhersla er lögð á samfélagslega þætti. Meðal annars hefur verið áréttað að iðjuþjálfar þurfi í auknum mæli að beina sjónum að þeim ólíku aðstæðum sem fólk býr við, aðstæðum sem móta tækifæri þess til að lifa mannsæmandi lífi og stunda iðju sem er því mikilvæg. Bent hefur verið á að fjölmargar hindranir sem notendur iðjuþjálfunar standa frammi fyrir eiga rætur að rekja til stjórnsýslu, menningar og félagslegs umhverfis, svo sem þegar upplýsingar og þjónusta koma ekki til móts við þarfir þeirra (t.d. Egilson og Jónasdóttir, 2023; Gerlach, 2015; Hammell, 2017; 2021; Snæfríður Þóra Egilson og Guðrún Pálmadóttir, 2018; Snæfríður Þóra Egilson og Sigrún Kristín Jónasdóttir, 2022). Þarna endurspeglast einnig hugsanlega áherslur og áhrif Alþjóðlega flokkunarkerfisins um færni, fötlun og heilsu (International Classification of Functioning, Disability and Health (World Health Organization, 2001) þar sem hugtökin þátttaka og umhverfi eru í brennidepli (Guðrún Pálmadóttir, 2013). Þrjár af fjórum greinum af hugmynda- fræðilegum toga endurspegla gagnrýnar áherslur en greinum af þeim toga fer fjölgandi, ekki síst í SJOT og JOS. Einungis tvær greinar beindust hins vegar sérstaklega að færni, en í annarri þeirra voru þátttaka barna og skólaumhverfi einnig í brennidepli (Egilson og Coster, 2004). Líkt og fyrr segir var þó undirliggjandi áhersla á framkvæmd og færni víðar, svo sem í greinum sem beindust að þjónustu og matstækjum. Greinar þar sem viðhorf og líðan voru í brennidepli voru af mjög ólíkum toga eins og fram hefur komið og beindust ýmist að námi og fagi t.d. (Kaplan og Ásmundsdóttir, 2000; Thordardottir o.fl., 2020) eða viðhorfum almennings eða hópa um tiltekin málefni (t.d. Gunnhildur Jakobsdóttir o.fl., 2017; Sonja Stelly Gústafsdóttir, 2016). Fræðigreinar á öðrum vettvangi Líkt og fram kemur í töflu 2 og mynd 1 hér að framan hafa iðjuþjálfar birt fræðigreinar í fjölda tímarita og á fjölbreyttum þverfaglegum vettvangi. Mikill meirihluti greinanna snýst hvorki um iðjuþjálfun né iðjuvísindi sem kemur ekki á óvart þegar birt er á öðrum vettvangi. Alls komu 21 íslenskur iðjuþjálfi að þessum greinarskrifum, að hluta til þeir sömu og í greinum í iðjuþjálfunartímaritum en þó ekki að öllu leyti. Tæpur þriðjungur greinanna, 23 greinar alls, voru í tímaritum á heilbrigðisvísindasviði. Tímaritin eru æði fjölbreytt og endur- spegla vel þá breidd sem er á sviðinu. Álíka margar birtingar voru í tímaritum í lýðheilsuvísindum (15%) og fötlunarfræðum (15%) annars vegar og í uppeldis- og menntunarvísindum (11%) og lífvísindum (10%) hins vegar. Sjö prósent birtinga voru í tímaritum í félagsvísindum og endurhæfingu. Þar sem endurhæfing er svo miðlæg í kjarna iðjuþjálfunar kom greinarhöfundum nokkuð á óvart að einungis fimm greinar voru í skilgreindum endurhæfingartímaritum, en hugsanlega hefði mátt flokka tímaritið Work undir endurhæfingu og þar birtust aðrar fimm greinar. Skilgreind endurhæfingartímarit eru reyndar ekki mörg og ekki auðvelt að fá birt þar enda höfnunarhlutfall hátt, svo sem í Disability and Rehabilitation og Clinical Rehabilitation. Þess ber að geta að áður en viðmiðin voru þrengd flokkuðust flestar greinar undir tímarit í lífvísindum. Það tengist því að Kristín Siggeirsdóttir iðjuþjálfi hefur um árabil starfað með afkastamiklum rannsóknarhópi sem birt hefur mikið á þeim vettvangi og víðar. Líkt og fyrr segir eru greinarhöfundar í lífvísindum oft mjög margir og einnig í sumum greinum heilbrigðisvísinda og öldrunarfræða, öfugt við það sem tíðkast í iðjuþjálfatímaritum og í félags- og menntavísindum. Þegar viðmiðin voru þrengd fækkaði því mjög í flokki lífvísinda. Ekki verður farið nánar í áherslur og efni greina á öðrum vettvangi enda leikurinn ekki til þess gerður.

x

Iðjuþjálfinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðjuþjálfinn
https://timarit.is/publication/1164

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.