Iðjuþjálfinn - 2023, Page 28
Iðjuþjálfinn I Fagblað iðjuþjálfa I 1. tölublað 2023 28
Viðtal:
Þorum að spyrja og prófa eitthvað nýtt
Dr. Björg Þórðardóttir, iðjuþjálfi
Gestalektor við Háskólann á Akureyri
Kennari og rannsakandi við
iðjuþjálfunar fræði Oslo Storbyuniversitet.
Dr. Björg Þórðardóttir sinnir fullu starfi við kennslu og rann-
sóknir í iðjuþjálfunarfræði við OsloMet (áður Høyskolen i
Oslo). Hún brást vel við beiðni ritnefndar að segja lesendum
nánar frá námi sínu og störfum, meðal annars við íslenska
útgáfu ReDo og Vamo í samstarfi við Reykjalund og fleiri.
Hún lauk námi í iðjuþjálfun í Næstved í Danmörku 1997. Hún
flutti þá aftur til Íslands, eignaðist fjölskyldu og vann lengst
af á Reykjalundi.
Nám og starf á Norðurlöndum
„Við fjölskyldan fluttum svo til Lundar í Svíþjóð korter í
hrun 2008. Makinn fór í meistaranám og ég tók lokaönnina
í BS-námi í iðjuþjálfun við Lundarháskóla til að komast i
meistaranám haustið 2009. Ég ílengdist í Lundi og var í
doktorsnámi 2011–2016 hjá Centre for Aging in Supportive
Environment,“ rifjar Björg upp (sjá https://www.case.lu.se/en/
casestartpage).
Sem fyrr segir er Björg rannsakandi og kennari við OsloMet.
Þar hefur hún starfað í rúm fimm ár, og næstum jafnlengi
hjá Háskólanum á Akureyri. „Í Osló kenni ég aðallega á 2. ári
og svo leiðbeini ég nokkrum meistaranemum, bæði hér og
við HA. Í haust byrjuðu 24 iðjuþjálfar (!) í meistaranámi við
OsloMet sem er mikil fjölgun frá fyrri árum. Í fyrra byrjuðu til
dæmis aðeins 6, svo aukningin er gríðarleg – mjög jákvætt og
spennandi. Það hefur líka verið lögð vinna í að kynna þetta
nám undanfarið,“ útskýrir Björg.
Fjölbreytt og fræðandi kennsla
„Ég kenni aðallega á haustin í yfirgripsmiklu endurhæfingar-
námskeiði svo það er mikil skipulagning í kringum það eigin-
lega allt árið. Við fáum fjölda kennara frá vettvangi til að kenna
bæði fræðilega og verklega kennslu, eins og t.d. spelkugerð,
COPM, notkun Virtual Reality við bæði líkamlega og geðræna
sjúkdóma, fáum inn lækna til að kenna sjúkdómafræði, iðju-
þjálfa frá Aldring og Helse sem eru sérfræðingar þegar kemur
að heilabilun, heimsækjum Sunnaas Sykehus (https://www.
sunnaas.no/) og áfram mætti lengi telja,“ lýsir Björg.
Hún sér einnig um aðgengisviku seinna á haustönn, „og
einmitt þar erum við hjá OsloMet að byggja upp samstarf við
námskeiðið Félagslegt umhverfi, stuðningur og tengsl (FUS)
við iðjuþjálfunarfræði í HA og stefnum á að láta nemana hittast
á fjarfundi í lok nóvember. Ég kynnti einmitt aðgengisvikuna á
WFOT í París í fyrra og langar að gera hana enn stærri með
nemendum og notendum frá fleiri löndum. Það er gælu-
verkefnið mitt. Ég hef fengið Ósk Sigurðardóttur til að segja
frá Römpum upp Reykjavík og Sigrúnu Kristínu Jónasdóttur
til að segja frá sínum rannsóknum. Þær hafa þá verið á zoom
en ég hef haft fyrirlesara í stofu líka, t.d. prófessor Inger-Marie
Ég og kollegi Fanny Alexandra að prófa Gerisuit og COPD
hermibúnað.