Iðjuþjálfinn - 2023, Page 33
Iðjuþjálfinn I Fagblað iðjuþjálfa I 1. tölublað 2023 33
orðalag, staðhætti og íslenskar venjur. Þegar þetta er skrifað
er þriðji og lokahluti fyrstu íhlutunarinnar á Reykjalundi að
klárast og önnur íhlutun hefst fljótlega. Stefnt er á að ljúka
tveimur íhlutunum í ár.
Gagnasöfnun í þessari rannsókn fer meðal annars fram með
spurningalistum úr ReDo-pakkanum. Notkun spurningalist-
anna er frumprófun á þeim og mikilvæg fyrsta vísbending
um gildi þeirra. Fleiri spurningalistar og matstæki hafa einnig
verið lögð fyrir við sama tækifæri til samanburðar og þar hefur
Reykjalundur valið það sem á best við og/eða það sem er nú
þegar í notkun þar.
Eftir áramót stendur svo til að taka viðtöl við iðjuþjálfana sem
stóðu að námskeiðunum um innleiðinguna. Stefnt er á að dr.
Pia Hultquist frá Háskólanum í Lundi og undirrituð, sem fulltrúi
Háskólans á Akureyri taki viðtölin.
Símenntun Háskólans á Akureyri er að ganga frá samningi
við sænska iðjuþjálfafélagið (s. Sveriges Arbetsterapeuter)
um réttindi til að halda námskeið fyrir íslenska iðjuþjálfa
sem vilja ná sér í ReDo-réttindi. Líklega verður kennt á ensku
(Erlandsson/Bohs/Hultquist) og íslensku. Stefnt er að því að
halda námskeið á Akureyri síðsumars 2024. Áhugasömum
lesendum Iðjuþjálfans er velkomið að hafa samband við undir-
ritaða á netfanginu bjorg@unak.is.
Til gamans má benda á vísindagrein um svipaða rannsókn á
innleiðingu ReDo í írsku samhengi fyrir konur í geðheilbrigðis-
þjónustu heilsugæslunnar þar. Sú grein byggir á viðtölum við
bæði iðjuþjálfa og skjólstæðinga og er skemmtileg yfirlestrar,
með tilvitnunum frá þátttakendunum (Fox o.fl., 2021).
Að lokum vil ég þakka fræðslunefnd Iðjuþjálfafélagsins fyrir
úthlutun sem kom sér vel við þýðingu og prófarkalestur.
Ein frá WFOT í Paris.
Heimild:
Fox, J., Erlandsson, L.-K. og Shiel, A. (2021). A feasibility study of the Redesigning daily occupations (ReDoTM-10) programme in an Irish context. Scandinavian Journal
of Occupational Therapy, 29(5), 415–429. https://doi.org/10.1080/11038128.2021.1882561