Iðjuþjálfinn - 2023, Blaðsíða 37
Iðjuþjálfinn I Fagblað iðjuþjálfa I 1. tölublað 2023 37
Einstakur árangur
Upphafið
Hugarafl fagnaði 20 ára afmæli þann 5. júní í ár. Við
tímamót sem þessi höfum við litið yfir farinn veg, skoðað
baráttuna, árangurinn, farið yfir reynsluna og horft til
framtíðar. Hugarafl var stofnað í Grasagarðinum í Laugardal
þann 5. júní 2003. Fimm einstaklingar lögðu á ráðin og hófu
opið samtal um drauma sína um betra geðheilbrigðiskerfi
á Íslandi. Í hópnum voru fjórir einstaklingar sem höfðu
persónulega reynslu af geðheilbrigðiskerfinu og iðjuþjálfi
sem hafði starfað á bráðamóttöku geðsviðs Landspítala
Háskólasjúkrahúss. Öll vorum við sannfærð um að gera mætti
betur og vorum tilbúin að leggja okkar á vogarskálarnar til
að draumar okkar gætu ræst. Við vildum nýta reynslu okkar
og stuðla að breyttum áherslum. Öll höfðum við reynslu
á eigin skinni af hvernig geðheilbrigðiskerfið virkaði og
hvernig þjónustan var. Við vildum sjá breyttar áherslur og
mannúðlegri nálgun. Við vildum sjá meira samtal í þjónust-
unni, sjá áherslu á styrkleika og minni áherslu á sjúkdóma.
Við vildum sjá full réttindi til handa þeim sem leita aðstoðar
vegna geðrænna áskorana og aðstandenda þeirra.
Við ákváðum að gera „byltingu“ og lögðum á ráðin sumarið
2003. Sátum í Grasagarðinum tvisvar í viku og deildum
skoðunum okkar, löngunum og draumum. Þessi fimm manna
hópur hafði stóra drauma, hugsjónir og vilja til að nýta kraftana
til breytinga. Að þrýsta á breytingar krefst seiglu og áræðis og
að ýta við stöðnun er ekki einfalt. Stöðnun gefur engin fyrir-
heit um breytingar eða nýjar leiðir en það var einmitt það sem
við vildum, skapa nýja leið sem yrði valmöguleiki í bataferli
við hefðbundna geðheilbrigðisþjónustu. Við kynntum til
sögunnar batanálgun PACE (Dan Fisher, Md PhD, Tom Langan
og Laurie Ahern) og valdeflingu, ásamt Working Definition
of Empowerment eftir Judi Chamberlin sem við höfum unnið
eftir í öllu starfi okkar undanfarin 20 ár. Þess má einnig geta
að þessi hugmyndafræði hefur einnig verið notuð í Háskóla
Íslands og Háskólanum á Akureyri, iðjuþjálfunarfræði.
Styrmir Gunnarsson heitinn, þáverandi ritstjóri Morgun-
blaðsins, studdi Hugarafl dyggilega af stað og opnaði blaðið
fyrir okkur. Hann þekkti geðheilbrigðismál af eigin raun og
beitti sér alla tíð fyrir að framþróun gæti orðið í nálgun og
þjónustu.
Heilbrigðisráðherra á þessum tíma var Jón Kristjánsson og
hann var fyrsti ráðamaðurinn sem við heimsóttum. Jón sýndi
okkur strax velvilja og ákvað að gefa hugmyndum okkar braut-
argengi. Þegar undirritaður iðjuþjálfi lagði af stað til þáverandi
heilbrigðis- og tryggingamálanefndar var hugmyndin að
sinna eftirfylgd einstaklinga og vinna með aðstandendum
að uppbyggingu tengslanets og hópastarfi sem fékk nafnið
Hugarafl. Þegar unnið var að beiðni til nefndarinnar studdu
tveir einstaklingar við iðjuþjálfann í hverju skrefi og það var
ómetanlegt; Björk Pálsdóttir þáverandi forstöðumaður Hjálpar-
tækjamiðstöðvar hjá Tryggingastofnun ríkisins og Kristján
Guðjónsson þáverandi forstöðumaður Sjúkratrygginga hjá TR.
Það ber að þakka framsýni þeirra og stuðning við nýsköpun á
geðheilbrigðissviði. Þau höfðu trú á framtakinu og sýndu það
sannarlega í verki.
Auður Axelsdóttir, iðjuþjálfi
og framkvæmdastjóri Hugarafls.
Málfríður Hrund Einarsdóttir,
formaður Hugarafls.
Forsetinn mættur í 20 ára afmæli Hugarafls.
Hugarafl