Iðjuþjálfinn - 2023, Side 38
Iðjuþjálfinn I Fagblað iðjuþjálfa I 1. tölublað 2023 38
Fjöldinn allur af góðu fólki hefur stutt starf Hugarafls í
gegnum tíðina og viljað sjá breytingar. Alþingi Íslendinga,
ráðherrar, þingmenn, fagfólk og almenningur hefur fylgst
með og hvatt samtökin áfram. Það er ómetanlegt og hefur
oft gert það að verkum að við höfum ekki látið deigan síga í
landslagi geðheilbrigðiskerfis sem hefur á vissan hátt runnið
sitt skeið. Hugarafl er alltaf í opnu samtali við þá aðila sem
láta sig málefnið varða og leggur einnig áherslu á opin skoð-
anaskipti og tjáningu. Oftar en ekki er leitað álits hjá Hugarafli,
m.a. fyrir stefnumótun, varðandi frumvörp og þróunarvinnu í
geðheilbrigðismálum. Þannig hafa samtökin víðtæk áhrif og
geta alltaf leitað í notendareynslu Hugaraflsfólks.
Þróunin
Fyrstu árin var eftirfylgdin GET (Geðheilsa eftirfylgd) rekin
á vegum Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Teymið GET
og Hugarafl vann hlið við hlið. Þarna var fyrsta geðteymi
heilsugæslunnar skapað og áherslurnar voru bati og vald-
efling, persónuleg þjónusta og eftirfylgd. Það þótti bera vott
um framsýni, þ.e. að notendur og fagfólk gætu stillt saman
strengi og nýtt reynslu hver annars í starfinu. Má til gamans
nefna að við hlutum verðlaun fyrir vikið frá styrktarsjóðnum
„Þú getur“ fyrir að leiða þessa tvo hópa saman og stuðla
að auknu samstarfi sem gæti verið óþvingað með jöfnum
valdahlutföllum. Það var mikilvægt því það er því miður frekar
„auðvelt“ að taka völd af einstaklingum og fjölskyldum sem
ganga í gegnum geðrænar áskoranir og leita sér hjálpar.
Vanmátturinn er svo mikill, óttinn er óþægilega nálægur
þegar vanlíðan ber að garði og hann tekur stundum stjórnina.
Þjónustan áskilur sér rétt til að ráða för, taka völdin á þeim
forsendum að heilbrigðisstarfsfólk viti betur, en það er því
miður ekki alltaf raunin.
GET var lagt niður árið 2017 af þáverandi heilbrigðisráðherra
Svandísi Svavarsdóttur. Það var mikið áfall og virtist ekki endi-
lega ákvörðun hugsuð með hag notenda og aðstandenda í
huga. Brautryðjendastarf til 15 ára var engu að síður lagt niður
og þar með þessi valmöguleiki að geta haft opið aðgengi án
biðlista með valdeflingu og bata að leiðarljósi. Hér var í raun
og veru um óskiljanlega ákvörðun að ræða og gríðarlegur
árangur hunsaður að því er virðist. Þróun geðteyma innan
heilsugæslunnar fór af stað í kjölfarið en með töluvert annarri
nálgun. Áhersla er lögð á sjúkdómsgreiningar og notandinn
þarf sannarlega að „passa inn“ en ekki öfugt eins og það ætti
að okkar mati að vera, þ.e. að þjónustan sé alltaf á forsendum
notandans en ekki fagfólksins.
Við opnun nýrrar aðstöðu í Síðumúla.
Vinnufundur stjórnar Hugarafls og Dan Fisher í maí
2023.