Iðjuþjálfinn - 2023, Page 52
VILJI
FRAMKVÆMDAGETA
UMHVERFI
Einstaklingsmiðuð nálgun, fjölbreytni innan hópsins,
virðing og traust, áhugahvöt, trú á eigin áhrifamátt,
virkjun viljans, tækifæri til að prófa og val
Andleg og líkamleg heilsa og
færniþjálfun
Traust, sveigjanleiki og samvinna milli
mismunandi kerfa
Höfundar
Frá vinstri til hægri
Sigríður Lóa Björnsdóttir, ha190004@unak.is
Sara Ósk Níelsdóttir, ha190292@unak.is
Andrea Eir Guðmundsdóttir, ha190098@unak.is
Ásthildur María Árnadóttir, ha180173@unak.is
Fyrir frekari upplýsingar má hafa samband í tölvupósti
Úrræði fyrir ungt fólk á
aldrinum 16-25 ára sem
hvorki er í námi né vinnu
Notuð var aðferðafræði kögunarrannnsókna Arksey og
O’Malley (2005). Þessi aðferðafræði felur í sér fimm
skref:
(1) Rannsóknarspurning sett fram
(2) Viðeigandi efni fundið
(3) Val á efni
(4) Skipulagning gagna,
(5) Skipulag, samantekt og framsetning niðurstaðna
Rannsóknir sem nýttar voru í greinina fundust með
gagnlaleit í EbscoHost og ProQuest og í heimildarskrám
greina sem komu fram í leitinni.
13 greinar fundust sem fjölluðu um rannsóknarefnið og
voru þær rýndar og þemagreindar.
NEET ungmenni eru fjölbreyttur hópur með ólíkar og breytilegar þarfir. Þau þurfa úrræði og íhlutanir sem byggja á
sveigjanleika og fjölbreytni, bæði í uppsetningu úrræða og í samskiptum við einstaklinga hópsins. Mikilvægt er að
úrræði leggi áherslu á að byggja upp traust í samskiptum milli ungmennanna og þeirra sem veita þjónustuna.
Úrræði sem hafa verið reynd og náð árangri byggja mörg á fjölbreyttum leiðum færniþjálfunar og eflingu andlegrar
og líkamlegrar heilsu. Niðurstöður gáfu til kynna að lítil fjármögnun til úrræða, óstöðugleiki þeirra og skortur á
upplýsingaflæði milli kerfa hafi neikvæð áhrif í veitingu úrræða. Að lokum sýndu niðurstöður að mikil þörf er á
rannsóknum í þessum málum, sérstaklega á gagnsemi og árangri úrræða.
Heimildir:
Arksey, H. og O’Malley, L. (2005). Scoping studies: Towards a methodological framework. International Journal of Social Research Methodology, 8(1),
19 – 32. https://doi.org/10.1080/1364557032000119616
Viðfangsefni rannsóknarinnar eru úrræði fyrir ungt fólk á
aldrinum 16-25 ára sem hvorki er í námi né vinnu.
Hópurinn er skilgreindur með faghugtakinu NEET sem
stendur fyrir not in employment, education or training.
Þessi hópur er í aukinni hættu á félagslegri útskúfun og
fjárhagsvanda auk þess sem honum skortir færni til að
bæta efnahagslegar aðstæður sínar. Auknar áhyggjur
eru hér á landi og erlendis vegna fjölgunar innan
hópsins og skorti af fjölbreyttum úrræðum fyrir hann.
Viðfangsefnið var nálgast út frá Líkaninu um iðju
mannsins (MOHO).
Hvaða úrræði eða íhlutunarleiðir hafa verið reyndar til
að styðja við líðan, þátttöku og hlutverk ungs fólks sem
hvorki er í námi né í starfi?
Bakgrunnur Aðferðafræði
Niðurstöður
Niðurstöðum var skipt niður í þrjú megin þemu byggð á
hugtökum úr MOHO. Þemun sem við greindum voru vilji,
framkvæmdageta og umhverfi sem hvert um sig hafði
nokkra undirflokka. Þessir undirflokkar tengdust allir
íhlutunum og framkvæmd þeirra.
Átta greinar sýndu niðurstöður tengdar vilja, tíu sýndu
niðurstöður tengdar framkvæmdagetu og tólf tengdar
umhverfi.
Sjö greinar notuðu eigindlega aðferðarfræði, tvær
megindlega aðferðarfræði og fjórar við blandaða aðferð.
.
Umræður