Úrval - 01.10.1967, Blaðsíða 10
8
ÚRVAL
björninn Baloo úr Frumskógar-
bókum Kiplings tók klunnaleg
dansspor. Fyrirtæki þetta var auð-
vitað kvikmyndafélagið Walt Disn-
ey Productions, og þarna var verið
að sýna kvikmyndir hans til
reynslu, áður en þær skyldu sendar
á markaðinn.
En það kváðu ekki við neinir
hlátrar, þegar sýningu síðustu kvik-
myndarinnar lauk þennan dag, held-
ur mátti sjá tár í augum margra
viðstaddra. Þetta var síðasta kvik-
myndin, sem Walt Disney kom
sjálfur í'ram i, en hann dó þ. 15.
desember árið 1966. í kvikmynd
þessari skýrði hann frá ýmsum
framtíðaráætlunum sínum, og
gnæfðu þær áætlanir jaínvel yfir
mestu afrek hans til þessa dags.
Ein hin stórkostlegasta af þessum
nýju hugmyndum hans var 100
milljón dollara Disneyheimur þar á
meðal „borg framtíðarinnar", sem
byggjast skyldi nálægt borginni
Orlando suður í Florida, og skyldi
borgarstæðið verða tvöfalt stærra
en öll Manhattaneyjan. Átti mið-
hluti hennar að vera undir gler-
hjálmi.
Roy bróðir hans, sem tók við
stjórn Walt Disney Productions
eftir dauða Walt Disneys, segir svo
um áætlun þessa: „Daginn áður en
Walt dó, lá hann í rúmi sínu í
sjúkrahúsinu og starði upp í loftið.
Hann sá hljóðeinangrunarplöturnar
í loftinu fyrir sér sem risavaxið
kort af Disneyheimi þeim, sem rísa
skyldi suður í Floridafylki. Hann
mælti þessi orð: „Þarna setjum við
einsporsbrautina. Og við látum
þjóðveginn liggja þarna.“
Roy er orðinn 73 ára gamall.
Hann er alþýðlegur í fasi. Hann
hefur nú tekið við hlutverki að
hrinda síðustu og mestu draumum
Walts í framkvæmd. Hann situr við
skrifborð sitt í látlausri skrifstofu.
Og á veggnum fyrir ofan höfuð
hans hangir málverk eftir Karsh af
hinum fræga bróður hans og frið-
arpípa Indíána, sem Walt færði
honum að gjöf eftir einhverja deilu,
sem hann er nú búinn að gleyma
fyrir longu. Þar stjórnar hann og
leiðbeinir heilum hópi fram-
kvæmdastjóra í ríki Walts Disneys,
en það spannar nú um víða veröld
og innan vébanda þess er fengizt
við framleiðslu kvikmynda, sjón-
varpsþátta, myndasagna og mynda-
sögutímarita, tónlistar og hljóm-
platna. Það hefur aldrei verið
slakað á. Allt heldur áfram á fullri
ferð. „Núna er algerlega um hóp-
samvinnu að ræða“, segir Roy. „Við
erum að reyna að vera eins snjallir
samanlagt og Walt var sem ein-
staklingur."
YFIRGRIPSMIKIÐ OG DÝRT.
Roy hefur ætíð staðið í skugga
hins fræga bróðir síns, hvað al-
menningsálit og frægð snertir, en
hann vann samt við hlið hins
snjalla yngri bróður síns allt frá
byrjun, öll þau 40 ár, sem það tók
að byggja upp þetta risavaxna fyr-
irtæki. „Roy var vanur að aka mér
í barnavagni“, sagði Walt einu sinnt,
og hann hefur ætíð annazt mig síð-
an.“
Walt reyndi fyrst við skopmynda-
teiknun í Kansas City, og þá varð
það bankastarfsmaðurinn Roy, sem