Úrval - 01.10.1967, Page 12

Úrval - 01.10.1967, Page 12
10 ÚRVAL fá lánað nægilegt fé til þess að inna af hendi fyrstu greiðslu fyrir nokkra appelsínulundi nálægt borginni Anaheim um 28 mílum fyrir suð- aústan Los Angeles. Og nú hófst byggingarstarfsemin. Walt vildi, að í þessum nýja skemmtigarði yrði allt öðruvísi en í venjulegum skemmti- görðum. „Þú dettur beint á smett- ið“, sagði fjölleikahúseigandi einn við Walt. „Kannske gerum við það.“ sagði Walt þá og yppti öxlum, „en við dettum þá fram á við.“ TÖFRASPROTI Sagan um velgengni og vinsældir skemmtigarðsins Disneylands er eins furðuleg og ævintýrin, sem Walt hefur kvikmyndað. Yfir 60 milljónir gesta frá flestöllum lönd- um veraldarinnar hafa heimsótt Disneyland. Walt kallaði Disney- land konungsríki sitt og sagði, að það væri „konungsríki töfranna". Og skyndilega var sem einhver heilladís hefði veifað sprota sínum og lagt. blessun sína yfir allar hans framkvæmdir. Walt fór nú að gera sjónvarpsþætti og myndir og naut tafarlaust geysilegra vinsælda. Má þar nefna Davy Crockett, sem hann kom fljótlega fram með í sjónvarps- þáttum sínum, og má jafnvel tala um Davy Crockettæði í Bandarikjunum. Walt fór nú að framleiða venjuleg- ar kvikmyndir og hætta að einbeita sér að teiknimyndaframleiðslu. Nú eru þessar „fjölskyldumyndir“ orðn- ar 28 að tölu, þ.e. kvikmyndir, sem hæfa allri fjölskyldunni. Eru þær meðal ábatasömustu kvikmynda, er framleiddar hafa verið í Hollywood, og er „Mary Poppins" þar í farar- broddi. „í hvert skipti sem aðrar kvikmyndir verða sóðalegri, eykst aðsóknin að kvikmyndum okkar,“ sagði Walt. Eftir þriggja áratuga erfiða bar- áttu, þar sem oft mátti ekki miklu muna, að illa færi, voru Disney- bræður ekki aðeins orðnir vel stæð- ir fjárhagslega, heldur höfðu þeir brotið nýtt blað í sögu kvikmynda- borgarinnar Hollywood. Það má segja, að hin endanlega velgengni fyrirtækis þeirra eigi sér vart sinn líka í sögu kvikmyndaborgarinnar. Nú í ár framleiðir félagið Walt Disney Productions hálfa tylft kvik- mynda og nýja sjónvarpsþætti í stórum stíl. Nemur samanlagður sýningartími þátta þessara 26 klukkustundum. Þar að auki hafa verið lagðar 45 milljónir dollara í ár í ýmsar nýjar framkvæmdir í D'sneylandi og hafizt hefur verið handa við framkvæmd nýrra áætl- ana Walts. SKIPULEG RINGULREIÐ Taugamiðstöð Walts Disney Pro- ductions gengur undir nafninu WED (upphafsstafirnir í nafni Walts E. Disneys) Enterprises, Inc. (WED- fyrirtækin hf.), en þar eru gerðar áætlanir um nýjar framkvæmdir Walt Disney Productions og unnið að þeim eftir því sem það er ger- legt að gera slíkt þar. Fyrirtækið WED er til húsa í stórri, hvítri tveggja hæða byggingu í skugga hinna auðu Verdugofjalla. Manni dettur helzt í hug, að maður sé staddur í einskonar „draumaverk- smiðju“, þar sem draumar verða að veruleika. Umhverfið líkist einna
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.