Úrval - 01.10.1967, Side 24
22
ÚRVAL
ár, lagðist hann í sjúkrahús í Kans-
as City til þess að láta skera særða
fótinn upp. Hann getur notað hann
nú orðið, en stór svæði fótarins eru
tilfinningalaus, og hann mun þurfa
að nota alveg sérstakan sjúkraskó
á fætinum til dauðadags.
Það er mjög stutt síðan tæmandi
upplýsingar um tíðni slöngubits
urðu fáanlegar. Dr. Henry M. Parr-
ish við Læknadeild Missouriháskóla,
sem hefur unnið að rannsóknum
slöngubits árum saman, hefur nú
lokið við slíkar athuganir, er ná
til allra Bandaríkjanna. Niðurstöður
hans, sem hafa að geyma fyrstu
áreiðanlegar og tæmandi tölur á
þéssu sviði, sýna, að tíðni slöngu-
bits er geysilega misjöfn, þegar hin
einstöku fylki eru borin saman.
Tíðnin er bæði komin undir fjölda
eitraðra slanga í hinum ýmsu fylkj-
. um, þéttbýli manna og fleiri þátt-
um.
Texasfylki, sem er heimkynni
skellinaðra, koparhausa, vatnssnáka
(vatnsmokkasína) og kórallasnáka,
er hér efst á blaði með 1400 tilfelli
árlega. En þegar tekið er tillit til
mannfjölda fylkjanna, þá er Norð-
ur Karólínufylki hættulegasta fylk-
ið í landinu, hvað slöngubit snertir.
í 1 af fylkjunum eru 10 eða fleiri af
hverjum 100.000 íbúum bitnir á einu
ári. í Nprður-Karólínufylki eru til-
fellin 19 af 100.000, í Arkansasfylki
17, í Texasfylki 15, í Georgíufylki 13,
í Vestur-Virginíufylki 11, en 10 í
Missisippifylki og Louisianafylki
hvoru um sig. (Þrátt fyrir hina
miklu tíðni slöngubits í Norður-
Karólínufylki, voru aðeins skráð
þar samtals 3 dauðsföll af þessum
völdum á árunum 1953—1962 og
Bandaríska heilsugæzluþjónustan
skýrir frá því, að árlegur fjöldi
slíkra dauðsfalla sé aðeins 10—15
í öllum Bandaríkjunum). Neðst á
listanum eru svo Alaska, Hawaii
og Mainefylki, þar sem eru engar
eitraðar slöngur nema þá í dýra-
görðum. í öðrum fylkjum Nýja
Englands en Mainefylki er aðeins
svolítið um koparhausa og timbur-
skellinöðrur á víð og dreif og þess
vegna eru slöngubit einnig mjög
fátíð í þeim fylkjum.
Þrátt fyrir alls konar furðusögur
og ýkjur, þá eru skellinöðrurnar,
vatnasnákarnir, koparhausarnir og
kórallasnákarnir einu lífshættulegu
slöngurnar fyrir norðan landamæri
Mexíkó. Af þessum fjórum ban-
vænu slöngutegundum eru mestar
líkur til, að menn rekist á sk.elli-
nöðrurnar. Tveir þriðjuhlutar af
öllum slöngubitum eru af þeirra
völdum, og hinar stærri tegundir
þeirra eru meðal banvænustu
slöngutegunda jarðarinnar. Yfir-
völdin hafa skráð um 30 tegundir
af slöngum í Bandaríkjunum,
og eru þær mjög mismunandi að
stærð, allt frá 18 þumlunga langa
dvergsnáknum til 7 feta löngu dem-
antahryggslöngunnar. Þær finnast
í alls konar landslagi og við alls
konar lífsskilyrði um gervallt land-
ið, allt frá þyrkingslegum eyðimörk-
um til vatnsbóla, inni í skógum og
jafnvel nálægt fannbreiðum háfjall-
anna allt uppi í 11.000 feta hæð.
Vatnasnákurinn eða baðmullar-
munnurinn lifir auðvitað í vatni,
eins og nafnið bendir til. Hann finnst
allt norðan frá Virginíufylki suður