Úrval - 01.10.1967, Side 41

Úrval - 01.10.1967, Side 41
AÐ REYNA SIG VIÐ SKRATTANN 39 þeirra (m.ö.o. það varð alls ekki gómað). En samt var það ekki að- alvandinn að smíða slíka lampa, heldur vildu þeir hitna úr hófi fram af rafsegulöldunum, sem í þeim léku. Engin leið fannst til að kæla þá, og þeir urðu fljótt ónýtir. Óhugsandi var að snúa við og fara að nota lengri öldur, því EHF var orðin staðreynd, sem ekki varð umflúin. Með einhverjum ráðum þurfti að finna aðferð til að búa til lampa, sem ekki þyrftu að smækka að sama skapi og bylgj- urnar styttust, en ekki var hægt um vik, því lögmálin fyrir smíði þessara tækja voru öll miðuð við að þetta stæðist á. Útvarpsverkfræðingarnir létu sig einvörðungu varða smíði tækjanna, reyndu að gera þau sterkari, end- ingarbetri og aflmeiri. Þeir gáfu engan gaum að því hvað kæmi fyrir bylgjurnar á leið þeirra til ákvörð- unarstaðarins og til baka, því ætl- uðu þeir eðlisfræðingunum að sinna og ráða fram úr, enda höfðu þeir fullan hug á því. Hvað mundi verða um útvarpsbylgjur þegar þær rækj- ust á atóm og mólikúl í loftinu? Það er jafn erfitt fyrir útvarpsbylgj- ur að komast gegnum lofthvolf jarðarinnar, eða hið neðsta lag þess, andrúmsloftið, og það er fyrir mann að komast gegnum myrkvið í frum- skógarbeltinu. Þær mæta atómum, beygja hjá þeim, fara hlykkjótta braut milli þeirra. Hvað gerist þá? Þessu vildu eðlisfræðingarnir fá svarað, því þeir vissu að sumar verða til í þessum farartálma. Stundum dreifast þær og ratsjáin fær engin boð frá þeim. Enginn vissi með vissu hvernig þeíta gerðist. Það sem öruggt var, var það, að ekki var unnt að not- ast við 1,3 cm útvarpsbylgjur vegna þess að þær týndust flestar í „frum- skóginum". Leitin var hafin og henni haldið áfram af kappi unz það fannst sem leitað var að. Þegar þeir létu út- varpsbylgjur fara gegnum afar þunnar lofttegundir, urðu þeir þess varir sð margar lofttegundir drukku í sig stuttar útvarpsbylgjur, og að lofttegundir völdu úr, almennt, og tóku ekki nema bylgjur af sérstakri bylgjulengd, en slepptu öðrum. Svo virtist sem mólikúl þessara lofttegunda laðaðist að þessum sér- stöku bylgium, og yrði ekki fyrir áhrifum af öðrum en þeim. Þau h'ktust útvarpstæki, sem ekki nær nema einni stöð. Smátt oe smátt rann það upp fyr- ir rannsóknamönnunum, að þessi hæfileiki mólikúlanna, að geta drukkið í sig bylgjur. stóð í sam- bandi við sérstök einkenni atóm- anna, sem þau voru gerð úr. Var þá farið að athuga bessi einkenni, og komu þá fram nv vísindi, — út- varpslitsjárfræðin. Þessi rannsókn- arefni voru ekki auðveld. heldur þörfnuðust þau mikillar einbeiting- ar og nákvæmni, en vísindamönn- unum þótti gaman að þessu, og líktu því við ráðningu góðrar kross- gátu. Fyrst er það hulin ráðgáta, hvernig byrja skuli, en svo kann að fara, að illt verði að slíta sig frá þessu. Allt gekk þetta eins og í sögu. Fleira og fleira kom í ljós um eðli atómanna og mólikúlanna, sem drekka í sig útvarpsöldur, en með
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.