Úrval - 01.10.1967, Side 56

Úrval - 01.10.1967, Side 56
54 þola birtu, einkum í tempruðu belt- unum. Einu ástæðurnar, sem lækn- ar álíta fullgildar til þess að ganga með lituð sjóngler, eru annarsveg- ar óþægindi, sem mikil birta veld- ur augunum, og hins vegar mjög löng útivera í sterku sólskini vegna atvinnu, þegar slíkt gæti hugsan- lega valdið sjónskemmdum. „Sól- gleraugu geta komið að notum, ef þú kiprar augun, hrukkar ennið, dregur saman vöðvana í augnlokun- um og augu þín verða þreytt, rök eða bólgin eftir daglanga dvöl í sól- skini.“ Þessi klausa stendur í bækl- ingi, sem gefinn er út af Landssam- bandi til hindrunar blindu. í „Standards for General Purpose Sunglasses“ (Gæðamat fyrir sól- gleraugu til venjulegrar notkunar), bæklingi, sem gefinn er út af Lækn- isfræðilegri rannsóknarstofu kaf- bátastöðvar bandaríska flotans í New London í Connecticutfylki, er því haldið fram, að hver sá útbún- aður, sem hvílir augnvöðvana, stuðli að heilbrigðri sjón. Enn fremur er því haldið fram, að áhrif sterkrar, glampandi sólarbirtu kunni að vera augunum skaðleg, en fyrstu áhrifin séu þau, að augun kiprast, ennið hrukkast og vöðvar í augnlokum dragast saman. Ef þú dvelur allan daginn í sterku sólskini og glampandi birtu, getur slíkt minnkað nætursjón þína um 50%. Því er það gott ráð að bera sólgleraugu, ef maður ætlar að dvelja allan daginn á baðströnd- inni. En gættu þess að taka þau af þér, áður en þú ekur af stað heim- leiðis. (Allir sérfræðingar á þessu ÚRVAL sviði vara við því að bera sólgler- augu í næturakstri). Það ætti aldrei að ganga með dökk gleraugu nótt sem nýtan dag, nema augnlæknir hafi fyrirskipað slíkt vegna sjúklegs ástands sjónarinn- ar. Sumir gera slíkt til þess að líkj- ast frægum Hollywoodstjörnum í fasi eða til þess að dylja þá stað- reynd, að þeir þarfnast gleraugna, er aldurinn færist yfir þá. Sam- band sérfræðinga á þessu sviði (American Academy of Ophthal- mology and Otolaryngology) heldur því fram, að stöðug, óþörf notkun sólgleraugna leiði til þess, að mað- ur verði þeim háður, þannig að það valdi manni miklum óþægindum og jafnvel sársauka að vera án þeirra í dagsbirtu. GETA ÓDÝR SÓLGLERAUGU HAFT SKAÐLEG ÁHRIF Á SJÓNINA? Spurningu þessari mætti svara á fleiri en einn hátt, en bezta, ná- kvæma svarið væri svohljóðandi: „Það er alveg mögulegt.“ Committee on Optics and Visual Physiology, American Medical Association (sú nefnd innan bandaríska læknafé- lagsins, er fjallar um þessa sér- grein), svarar spurningunni á þenn- an hátt: „Ódýrar gerðir af lituðum sjónglerjum (sólgleraugum) eru ekki slípaðar, heldur blásnar og í þeim eru því óhjákvæmilega ýmsir þeir gallar (ójöfnur o.fl.), sem fyr- irfinnast í blásnu gleri.“ Léleg sólgleraugu nema miklum hluta hinnar árlegu sölu. Framleið- endur þeirra halda því fram, að gallar gleraugnanna séu svo smá-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.