Úrval - 01.10.1967, Síða 66

Úrval - 01.10.1967, Síða 66
64 ÚRVAL sem hér búa, veitið innri manni mínum fegurð og að ytri maður minn og allt sem honum fylgir megi lifa í friði við hinn innri mann. — Megi mér veitast að ég telji þann mann einn ríkan, sem vitur er og einnig að gullbirgðir mínar séu ekki meiri en svo að góður maður fái risið undir þeim. Fedrus, þörfnumst við nokkurs meira? Ég hef beðið nóg fyrir sjálfan mig. Jowett, hinn mikli fræðimaður í fornbókmenntunum sígildu, og Platoþýðandi hefur sagt réttilega: „Vísirinn að öllum hugsjónum, jafn- vel flestum hugsjónum kristinna manna er að finna hjá Plato.“ Og þetta á ekki aðeins við um hugsjón- irnar heldur einnig hátternið. Plato hafði ekki áhuga fyrir eðlisfræði vísindum í sjálfu sér og þó var einn af samtímamönnum hans Demokrit- us, maðurinn, sem fyrstur talaði um atomið — en samt réði Plato til að útreikningi og tilraunum væri beitt gegn þrætulistinni. Hann beitti sér og gegn ímyndunar- kenndum og guðfræðilegum skiln- ingi á guðdómnum og einnig gegn ríkjandi goðfræði, og samt not- færði hann sér sjálfur óspart af goðsögnum, þegar hann var að út- lista skilning sinn á mannlegu sál- arlífi. Það hafa margar dulfræði- kenningar og margir spiritista-spek- ingar þróazt af kenningum Platos, en samt er Plato í grundvallaratrið- um boðberi og samræmandi þekk- ingarinnar, leitandi og skýrandi hrein undirstöðuatriði. Plato drakk í sig og lýsti mörgum af ríkjandi hugmyndum síns tíma, svo sem eins og Orfeusarkenningunni um sálina, og hann færði slíkar kenningar úr hinum þrönga stakki sem þær voru í og losaði þær við ýkjurnar og gallana og heimfærði þær síðan til hinnar almennu reynslu mannkyns- ins. Það er þess vegna ómögulegt að draga saman svo skiljanlegt verði hina víðfeðmu heimspeki Platos, nema á mjög yfirborðs- kenndan hátt. Heimspeki Platos er að höfuðefni siðfræðileg heimspeki. Hann telur manninn fæddan til þess að full- komna sig, og þessi fullkomleiki eigi að verða að veruleika í þessum heimi. Þetta fullkomnunar lögmál, sem maðurinn sjaldnast skilur og greinir ekki nema óverulega ein- staka sinnum, orsakar það, að hon- um finnst alltaf, að það sé eitthvað, sem hann vantar. Ef hann skyldi og hlýddi þessu lögmáli verundar sinn- ar, þá yrði hann fullkomlega ham- ingjusamur. Þessi kenning er vissu- lega mjög andstæð kristinni kenn- ingu, sem gerir ráð fyrir því, að maðurinn verði að sigrast á lægstu hvötum sínum og gerir síðan ráð fyrir sæluríkinu á himnum en ekki í þessum heimi. Frá sjónarmiði Platos á maðurinn sér ekki aðra skyldu en þá, að að- laga sjálfan sig fullkomnunarþörf- inni, því að þessi fullkomnunarþörf er eðli hans og þetta er ekki sið- ferðisatriði, heldur er það fremur nauðsynleg hegðan hins heilbrigða, og samdæmd þróun mannseðlisins. Hið góða er gott af því, og það er fallegt og heilbrigt, réttlæti er gott vegna þess, að ranglæti er sam- hengislaust, samræmislaust og Ijótt. Plato hefur fyrst og fremst hasl-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.