Úrval - 01.10.1967, Page 107

Úrval - 01.10.1967, Page 107
SÍÐASTI RÍKISLÖGREGLUFULLTRÚI. . . 105 ar af tjöldum. Og það hafði jafnvel ekki verið merkt fyrir neinum göt- um á milli tjaldþyrpinganna. Nú var sett á laggirnar 50 manna nefnd til þess að velja opinbera embættismenn, semja bæjarsam- þykkt og setja reglur og lög, sem fara skyldi eftir í bænum. Þeir völdu sér D. B. Dyer fyrir bæjarstjóra. Og eitt fyrsta verk hans var að senda eftir Bill Tilghman og skipa hann löggæzlumann bæjarins og spyrja hann síðan að því, hvað hann legði til, að gera skyldi. „Mér finnst, að það verði að vera okkar fyrsta verk að mæla fyrir götum, herra borgar- stjóri,“ svaraði Bill þá. Samkvæmt uppástungu Bills festi bæjarstjórinn yfirlýsingu um fram- kvæmd þessa, er í vændum var. Og hún var lesin upphátt hvað eftir annað þennan dag víðsvegar á hinu tilvonandi Oklahomastræti. Það kváðu við reiði- og vonbrigðahróp við hvern slíkan lestur. Það hafði að vísu verið mælt fyrir þessu til- vonandi stræti, en margir menn höfðu samt mælt sér út lóðarskika úti á því miðju án þess að taka nokkuð eftir hælum þeim, sem fyrir voru. Og nú fannst þeim sem það væri verið að hlunnfara þá. Þar að auki voru þarna margir forhert- ir fjárhættuspilarar, kráreigendur og gikkglaðir misindismenn, sem höfðu slegið eign sinni á stórar spildur af þessu tilvonandi stræti, þar eð þetta virtist ætla að verða verðmætasta viðskiptahverfi hins tilvonandi bæjar. Og þeir ætluðu sér ekki að sleppa bráð sinni. Um kvöldið ræddi Tilghman þetta vandamál við Jim Masterson, bróð- ur Bats. „Hve langt eigum við að einhver neitar að sleppa tilkalli til ganga í þessu máli?“ spurði Jim. Ef einhvers skika, sem strætið á að liggja um, eigum við þá að reka hann burt með valdi?“ „Okkar afstaða í þessu máli er of- ur einföld,“ svaraði Bill. „Það erum við, sem eigum að gæta þess, að lögunum sé hlýtt, og við verðum að sigra í þessu máli. Ef ekkur tekst ekki að ryðja braut fyrir strætið, verður enginn bær hérna, heldur eldfjall." Og klukkan 10 stundvíslega næsta morgun tók Tilghman sér stöðu við annan enda hins tilvonandi stræt- ist, en á eftir honum kom Jim Masterson ásamt tveim eklum með múldýraeyki, sem drógu þunga trjástofna á eftir sér. Við trjástofn- ana voru festar járnkeðjur. Eykin drógu trjástofnana þversum á eftir sér, og voru stofnarnir jafnlangir og fyrirhuguð breidd strætisins. Það var því vitað mál, að stofnarnir mundu fella um koll öll þau tjöld, sem voru í vegi fyrir hinu fyrirhug- aða stræti. Bill tók í tauminn á hestinum sínum og sagði svo við eklana. „Jæja þá, piltar, af stað með okkur. Farið hægt og rólega og gefið öllum nægan tíma til þess að flytja sig um set, en stanzið samt ekki.“ Múldýrin byrjuðu að draga trjá- stofnana niður eftir hinu nýja stræti, og þeir, sem áttu tjöld, sem voru í vegi fyrir múldýrunum, flýttu sér að taka þau niður og flytja þau á öruggan stað. Þetta gekk allt vel um hríð, og múldýrunum miðaði vel áfram niður eftir hinu
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.