Úrval - 01.10.1967, Page 108

Úrval - 01.10.1967, Page 108
106 ÚRVAL nýja stræti. En svo mætti þeim skyndilega hindrun. Það var mað- ur, sem stóð þarna beint fyrir framan eykin, gleiðfættur, með byssu í hendinni og ögrandi á svip. „Þið hrifsið ekki frá mér mitt land!“ öskraði hann. „Þú ert ekkert annað en landsréttindaþjófur, Tilghman, og ég ætla að meðhöndla þig á sama hátt og meðhöndla skyldi alla landsréttindaþj ófa.“ Nú hafði safnazt mannþyrping utan um þá. Það ríkti þögn, er Tilgh- man lét sig <renna léttilega úr hnakknum og gekk rólegur í bragði í áttina til mannsins, sem var al- veg óður af reiði. Mikill meirihluti viðstaddra skildi vel nauðsyn þess, að gerðar yrðu götur í hinum nýja bæ, en Tilghman gerði sér einnig grein fyrir því, að erfðavenjur Villta Vestursins áttu rík ítök í á- horfendum. Hann vissi, að þeir dáðu sjálfstæði og ögrandi afstöðu gagnvart yfirvöldunum og því mundu þeir standa með þeim, sem ynni í þessari viðureign, hvor sem það yrði. I-Iann losaði um byssuna í hylkinu, meðan hann nálgaðist mótherja sinn, en hann tók hana ekki í hönd sér. Það var aðeins um einn metri á milli þeirra, þegar Tilghman lét til skarar skríða. Hreyfingar hans voru svo leiftur- snöggar, að margir áhorfenda voru alls ekki vissir um, hvernig þetta hafði gerzt. Með vinstri hendi sló hann byssu mótstöðumannsins úr hendi hans, svo að hún þeyttist upp í loftið, og næstum samtímis sló hann hann bylmingshögg á hökuna með hægri hendi. Maðurinn hneig hljóðiaust til jarðar og lá grafkyrr. Tilghman sneri sér frá honum og sagði ofur rólega: „Berið hann burt af götunni.“ Viðstaddir hrópuðu húrra. Fólkið hafði eignazt sína hetju. Og innan klukkustundar hafði verið rudd braut fyrir Oklahoma- stræti frá enda til enda. VINUR AFBROTAMANNANNA Tilghman opnaði verzlun í Gut- hrie, og hún gekk alveg prýðilega. Tveim árum síðar stofnaði hann býli nálægt bænum Chandler, og þá var hann orðinn svo vel stæður, að hann gat byrjað búskap með full- um bústofni, sem hann hafði keypt sér. Hann byggði þar einnig tveggja hæða bjálkahús handa Floru og börnunum, sem voru nú orðin fjög- ur að tölu. En velgengnin verður oft til þess að auka eirðarleysi manna, og brátt fór það svo, að hann tók við stöðu í þjónustu ríkisins og gerðist ríkis- lögreglufulltrúi. Það gekk mjög á nautahagana, eftir því sem fleiri býli voru stoínuð, og því varð minna um atvinnu fyrir nautasmalana. Það varð sífellt erfiðara fyrir þá að fá atvinnu við sitt hæfi, og þeir sneru sér nú margir að afbrotum þess í stað. í fyrstu stálu þeir hestum og nautum eða rændu menn með hjálp byssu sinnar einir síns liðs. En brátt kom að því, að þeir tóku að mynda glæpaflokka og framkvæma banka- og lestarrán, sem voru þrautskipu- lögð út í yztu æsar, líkt og um hernað væri að ræða. Þá tók fljót- lega að bera á því, að löggæzlulið hvers staðar var ekki lengur fært
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.