Úrval - 01.10.1967, Blaðsíða 126

Úrval - 01.10.1967, Blaðsíða 126
124 ÚRVAL þá að engin leið var að komast til fjarlægra hnatta, nema að fara það í eldflaug. Þessvegna fór ég að reyna að búa mér til eldflaugarlíki. Eldflaugarnar mínar voru fylltar af eldspýtnahöfðum og ljósmynda- filmum, og gátu farið fimm hundr- uð til þúsund fet í loft upp, og flog- ið nokkur hundruð metra. Ef til vill hefði ég haldið þessu verki áfram ef ég hefði ekki fengið und- arlega veiki. Ég lagðist og lá í ár. Um þetta leyti var ég orðinn þó nokkuð æfður froskmaður. Ég var einn af hinum fyrstu í Liepaja, sem lærði þetta. Einu sinni sá ég litla marglyttu, sem var frábrugðin öðr- um, sem ég hafði séð. Hún var á að gizka 6 cm í þvermál og var með brúnan kross á baki. Ég náði mér í nokkrar af þessari tegund, fór með þær heim og setti í fiska- búr, sem ég átti og hafði sjálfur gert. Daginn eftir gat ég hvorki hrært legg né lið og hafði sára kvöl í bakinu. Svo lá ég í rúminu í marga mánuði lamaður. Ég komst að því seinna að þetta var litlu marglitt- unum mínum að kenna, þær voru eitraðar. Þegar mér fór að skána svo að ég gat haldið á bók, fór ég aftur að lesa um stjörnufræði, og nú las ég vísindarit um þetta efni. Þegar faðir minn sá hve gaman ég hafði af þessu, keypti hann handa mér góðan hermannakíki. Þá gat ég séð stjörnur, sem ósýnilegar eru berum augum. Ég gat ekki komizt í skól- ann, en ég las skólabækurnar í rúminu. Móðir mín hjálpaði mér. Þegar sumarið næsta á eftir rann upp, var mér batnað. Ég mátti bæði ganga, hlaupa og synda. Einu sinni, þegar ég var staddur í Riga, fór ég inn í rannsóknastofu þá í stjörnu- eðlisfræði, sem þar er, til þess að segja forstöðumönnum hennar frá áhuga mínum á stjörnufræði, og reyna að fá hjá þeim leiðbeiningar um það hvernig bezt væri fyrir mig að haga námi mínu. Dr. Jan Ikauniek, forstjóri stofn- unarinnar, hlustaði á mig með at- hygli, og spurði mig svo nokkurra spurninga um stjörnufræði. Ég svar- aði þeim greiðlega, og sá ég á hon- um að honum líkaði vel, og ég herti upp hugann og mæltist til að fá eitthvert verkefni. Ég var beðinn að gera athuganir á einni einstakri stjörnu — en það var Delta í Cepheus — og svo átti ég að gera línurit, sem sýndi breyt- ingar á birtumagni stjörnunnar frá upphafi athugananna til jafnlengd- ar næsta ár. Cepheidurnar eru stjörnuþyrp- ing, sem skiptir um ljósmagn í sí- fellu. Þær hafa verið rannsakaðar gaumgæfilega, og ég sá í hendi mér, að með þessu var verið að prófa hvað ég gæti og kynni, hve sam- vizkusamur ég væri, áreiðanlegur og úthaldsgóður. Raunar var ég ekki nema ellefu ára gamall skóla- drengur, sem hafði leyft sér að bjóða þessari vísindastofnun „aðstoð" sína. Þetta varð mér erfið raun. Á hverju kvöldi þegar heiðskírt var orðið á þeim hluta himinsins, þar sem stjörnuna mína var að finna, varð ég að mæta til þess að athuga hana. Þetta var versta verk, og ég varð að standa og reigja höfuðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.