Úrval - 01.07.1968, Blaðsíða 9
SJÓ VEITT Á EYÐIMÖRKINA
7
kílówatta af raforku, sem hún mun
einnig framleiða daglega, munu
verða meiri en öll framleiðsla raf-
orkuveranna við Hooverstífluna.
Dr. Jack Hunter, yfirmaður Eim-
ingardeildarinnar í bandaríska inn-
anríkismálaráðuneytinu, hefur skýrt
blaðamönnum frá því, að svipaðar
verksmiðjur gætu gerbreytt þeim
eyðimerkursvæðum jarðarinnar sem
að hafi liggja. Hann bætti því við,
að kostnaðurinn við framleiðslu
fersks vatns úr söltum sjó með hjálp
kjarnorku kunni brátt að lækka
svo, að þær stöðvar verði samkeppn-
isfærar við venjulegar vatnsorku-
stöðvar. Um þetta segir hann svo:
„Við miðum nú að eimingarvatni,
sem kostar um 1 cent fyrir hverja
450 lítra. Vatn frá venjulegum eim-
ingarstöðvum kostar yfir 10 cent
fyrir hverja 450 lítra, og er verð
það allt of hátt.
Verið er að athuga staðsetningu
slíkrar stöðvar við Kaliforníuflóa,
og hafa margir staðir komið til
greina. En nú er álitið, að stærsta
eimingarstöð heimsins verði reist
nálægt Santa Clara í Mexíkó eða
um 75 mílum fyrir sunnan bæinn
Yuma, syðst í Arizonafylki.
Staður þessi er nálægt helzta
landbúnaðarsvæði Arizonafylkis, en
svæði það er geysistórt, og einnig
nálægt hinum frjósama Imperialdal
í Kaliforníu, rétt fyrir norðan landa-
mæri Mexíkó. Vatnið yrði síðan leitt
í leiðslum með litlum tilkostnaði til
bæjanna Mexicali og Yuma og Suð-
ur-Kaliforníu, vegna þess að land-
ið er þarna mjög flatt og því auð-
velt að leiða vatn um það.
Mánuðum saman hafa nú farið
fram rannsóknir við Arizonaháskóla,
er beinast að hugsanlegri gerð og
byggingu stöðvar þessarar. Einnig
hefur farið þar fram athugun og
rannsókn á þeim breytingum, sem
hið ódýra vatn og raforka mundi
hafa í för með sér á svæðum þess-
um, bæði hvað snertir iðnað, ferða-
mannastraum, fiskiveiðar og einnig
þær hugsanlegu breýtingar, sem
kynnu að verða á öllu lífi í flóan-
um, ef saltlögurinn yrði látinn
streyma út í hann aftur, eftir að
ferska vatnið hefur verið unnið úr
sjávarvatninu.
Verkfræðingar álíta, að það séu
næstum því engar hættur samfara
rekstri vatnseimingarstöðvar, þótt
hún yrði rekin með kjarnorku, þar
eð orkudeild verksmiðjubáknsins
yrði vart hættulegri en venjulegur
miðstöðvarketill. Þeir halda því
fram, að það geti í rauninni ekki
orðið sprenging í slíkri stöð.
Væru allar byggingar þessa verk-
smiðjubákns byg'gðar hlið við hlið
í beinni línu, yrði báknið svipað
á lengd og 33 knattspyrnuvellir. En
báknið mun fremur líkjast fer-
hyrningi eða hring að lögun, því að
slíkt mun kosta miklu minna og
viðhaldið mun einnig verða miklu
ódýrara með því móti. En bákn
þetta mun ná yfir samtals 1.5 millj-
ón ferfeta svæði.
Til þess að fá einn lítra af fersku
vatni þarf sex lítra af sjó. Eigi að
vinna 4.5 billjónir lítra á dag í stöð-
inni, þarf þannig að dæla 27 billj-
ónum lítra af sjó í gegnum kerfið.
Til slíks þarf hvorki meira né
minna en 200.000 mílur af ryðfríum
rörum. Þau þurfa líklega helzt að