Úrval - 01.07.1968, Blaðsíða 62
60
ÚRVAL
urbútaðir pianóstrengir eru látnir
berja allt ryð af þeim á örskammri
stundu. Úr þessu tilbúna óveðri
koma plöturnar gljáandi sem silfur,
og að því búnu er þeim tafarlaust
difið niður í ryðvarnarmálningar-
bað.
í mörgum hlutum skipsins er stál-
plata, sem notast skal stjórnborðs-
megin, nákvæmlega eins og plata,
sem á að notast beint á móti bak-
borðsmegin, þ. e. a. s. að því undan-
teknu, að sú hlið, sem snýr út á
stjórnborða, snýr inn á bakborða,
og öfugt. Hví skyldi þá ekki skera
stálplötuna og „spegilmynd“ henn-
ar á hinni hlið skipsins með einum
og sama skurði, já, og enn fleiri
sams konar plötur, líkt og heilir
staflar klæðis eru skornir í fata-
verksmiðjum með einum og sama
skurði? Þegar sjálfvirkir skurð-
hnífar hreyfast til vinstri, skyldu
aðrir hreyfast um leið til hægri. Nú
er einmitt verið að gera slíkar til-
raunir, þ. e. að skera heilan stafla
af stálplötum í einu.
Jafnvel hinn slyngasti starfsmað-
ur með súrefnisskurðtæki í hendi
skilur eftir örlítið ójafnar brúnir,
þegar um er að ræða sérstaklega
bognar skurðlínur. Og síðar þarf
svo að eyða þessum ójöfnum og
örðum með talsverðum kostnaði. —
Hví skyldi ekki nota algerlega sjálf-
virk skurðtæki, sem stjórnað væri
með raffótosellu og „rataði“ sjálf-
virkt eftir hvítu striki af uppdrætti?
Slík tæki skera miklu hraðar og
nákvæmar en nokkur maður, og þá
þarf ekki að laga neinar örður og
ójöfnur á eftir. (Þetta virðist vera
mjög nýtízkuleg aðferð, en samt er
þróunin nú svo ör, að farið er að
nota enn aðra aðferð, sem er jafn-
vel enn betri, fljótvirkari og ódýr-
ari. Þar er um að ræða skurðtækni,
sem stjórnað er af reifeindakerfi
tölvunnar).
f desembermánuði árið 1958 hitt-
ust framkvæmdastjórar Götaverken
svo aftur til þess að hlusta á skýrslu
Svenssons um tilraunirnar. Hann
hélt því fram, að hinar nýju fram-
leiðsluaðferðir væru mjög hag-
kvæmar. En hann tók það jafnframt
fram, að það yrði ekki unnt að
breyta hinni gömlu skipasmíðastöð
Götaverken, þannig að unnt yrði að
nota hina nýju tækni. Hann sagði,
að það yrði að byggja nýja skipa-
smíðastöð frá grunni. Og hann
sagðist jafnframt vera búinn að
finna henni stað nálægt hinni
gömlu. Og hver yrði kostnaðurinn?
Um 200 milljónir sænskra króna.
Framkvæmdastjórarnir hrukku
við, er þeir heyrðu þessa háu upp-
hæð. Ef ráðizt yrði í slíkt, yrði þar
um að ræða eina allra mestu fjár-
festingarupphæð, sem nokkurt
einkafyrirtæki hefði enn ráðizt í í
Svíþjóð. En öryggi Svenssons var
smitandi, og stjórn Götaverken gaf
honum leyfi til þess að hefja fram-
kvæmdirnar við nýju skipasmíða-
stöðina.
Á klettóttri strördinni nokkrum
mílum fyrir utan Gautaborg keypti
Götaverken hluta af Arendal, staðn-
um, sem Svensson hafði uppgötvað
til þessarar framkvæmdar, og síðan
hófst bygging nýju stöðvarinnar í
marzmánuði árið 1959.
Aldrei hafði nokkur skipasmíða-
stöð verið reist af slíkri gerhygli og