Úrval - 01.07.1968, Qupperneq 72
70
ÚRVAL
Meðan Guiness er ekki að leika,
dundar hann í garðinum sínum, les
eða heimsækir nokkra góða kunn-
ingja. Hann og kona hans Merula,
sem er fyrrverandi leikkona, búa
í íburðarlitlu, fimm herbergja ein-
býlishúsi nálægt Petersfield í
Hampshire, þar sem þau hafa tvo
hunda, kött, tvo litla hesta og páfa-
gauk. Einnig eiga þau íbúð í
Knightsbridge i London.
Guinness hefur hvorki í þjónustu
sinni fastráðinn einkaritara né um-
boðsmann. Og þar sem hann kýs
helzt að fá að vera í friði, lifa kyrr-
látu lífi og dunda við fiskveiðar,
leitar hann nú fyrir sér um kaup á
húsnæði á afskekktri eyju í skozka
eyjaklasanum. Frú Guinness sér um
alla matseld og einnig, er þau hafa
smá veizlur. Þau eiga einn son, er
heitir Matthew. Hann er 27 ára og
er líka leikari,
Alec Guinness var sleginn til
riddara 1959. Hann er óvenjulega
hlýr og vingjarnlegur maður.
„Þegar ég ræði við unga leikara,
geri ég þá venjulega bálreiða með
því að segja þeim, að það sé meira
virði að reyna að verða sannur og
nýtur maður heldur en fyrsta flokks
leikari,“ segir hann.
Skakki turninn í Pisa.
Melvin Esrig, prófessor í verkfræði við Cornellháskólann i Banda-
rikjunum heldur því fram, að það mætti rétta skakka turninn í Pisa
á Ítalíu með hjálp rafmagns, a.m.k. að töluverðu leyti. Ef rafstraumur
væri látinn strevma miiii tveggja járnrafskauta, sem komið væri fyrir
í jarðveginum á þeirri hlið, sem snýr frá hallanum, mundi slíkt draga
vatn úr jarðveginum undir hærri hlið turnsins. Um leið mundi jarð-
vegurinn síga þeim megin og turninn með, þannig að hallinn minnkaði.
M.I.
„Ég veit, að það er framkvæmanlegt”, sagði gamall skipasmiður
eitt sinn, þegar um var að ræða mjög erfitt viðgerðarstarf. Þegar
hann var spurður að því, hvernig hann vissi það, svaraði hann: „Spyrj-
ið mig ekki svo margra spurninga. Ég get ekki skilið allt, sem ég
veit”.
R.E.L.
Roskin kona gekk inn i bókabúð i Stokkhólmi, benti á vel þekkta
sænska alfræðiorðabók, sem gefin er út í einu bindi og heitir „Hve-
nær, hvar, hvernig"?, og hvíslaði ofur lágt að afgreiðslustúlkunni:
„Er þetta ein af þessum ósiðlegu bókum”?
L.H.
Viðskiptavinur í sjálfsafgreiðsluverzlun segir við stúlkuna, sem
hamast við að stimpla inn á búðarkassa við útganginn: „Lesið þér
verðin, eða spilið þér bara eftir eyranu”?
J.M,