Úrval - 01.12.1969, Blaðsíða 17
EINA VALD MITT ER TRAUST FORSETANS
15
stöðu komizt svo að orði: „í máls-
hætti einum er sagt, að í landi hinna
blindu sé eineygði maðurinn kon-
ungur. Utanríkismálin eru nýtt við-
fangsefni fyrir innanríkisráðherr-
ann og varnarmálaráðherrann. Þeir
hafa ekki haft mikil kynni af þeim
málum. Og þetta hefur veitt Kiss-
inger stórkostlegt tækifæri til þess
að fylla upp í það tóm, sem þannig
hefur skapazt. Hann er nú vissulega
helzti ráðgjafi forsetans í utanrík-
ismálum. Og ég er ánægður yfir
því, að það skuli einmitt vera
Kissinger, sem gegnir því hlutverki.
Hann er heilsteyptur, hugsandi
maður með heilbrigða dómgreind.“
AUGU OG EYRU
Hinn opinberi titill Kissingers er
„aðstoðarráðherra þj óðaröryggis-
mála“. Sem slíkur hefur hann tvö-
földu hlutverki að gegna. Hann er
að nokkru leyti ráðgjafi og að
nokkru leyti „skriffinnur“ Meðal
skrifstofuskyldustarfa hans og
starfsliðs hans má nefna undirbún-
ing hinna vikulegu funda Þjóðar-
öryggisráðsins. Þar að auki verður
hann og starfslið hans að sjá um,
að forsetanum séu kynntar hinar
ýmsu skoðanir manna, hvað snert-
ir hin ýmsu vandamál, er skjóta
upp kollinum. Og það er einnig
þeirra skyldustarf að sjá um, að
framkvæmdir séu í samræmi við
ákvarðanir forsetans hverju sinni.
Þetta 20 manna starfslið er í raun-
inni „eyru og augu“ forsetans í hin-
um risavaxna skriffinnskumyrkviði
utanríkismála, þar sem samvinnan
er ekki alltaf upp á marga fiska.
Um þetta atriði farast Kissinger
svo orð: „Starf mitt er fólgið í því
að tryggja það, að forsetinn geti
rækt skyldustörf sín á skipulegan
hátt, og að sjá um, að óskir hans
séu uppfylltar, þ.e. ég sé um fram-
kvæmdir ákvarðana hans. Án þessa
embættis míns gæti forsetinn stað-
ið uppi varnarlaus gagnvart skrif-
finnskuveldinu. Hann mundi
drukkna í pappírsflóði Hann yrði
bara að gúmstimpli. Hann verður
að hafa einhvern við hlið sér, sem
kynnir honum málin á hlutlausan
hátt. En eina valdið, sem þetta em-
bætti mitt veitir, er fólgið í trausti
forsetans.“
Vinnudagur Kissingers hefst
klukkan 7,45 f.h., en þá hefst hinn
daglegi fundur helztu aðstoðar-
manna forsetans í Hvíta húsinu.
(Kannske öllu heldur klukkan 7,54
f.h., því að það er sífellt verið að
henda gaman að því, að Kissinger
er alltaf 9 mínútum of seinn á fund-
inn). Þessi fundur stendur til
klukkan 8,15. Þá halda hinir að-
stoðarmennirnir á fund forsetans,
þ.e. frá klukkan 8,30 til klukkan
9,00. Kissinger mætir ekki á þeim
fundi. En klukkan 9,00 heldur hann
á sinn daglega morgunfund hjá for-
setanum (og þá er hann aldrei of
seinn). Það getur verið, að sá fund-
ur þeirra standi aðeins í 10 mínút-
ur eða í heila klukkustund, allt eft-
ir því, hvaða mál bíða afgreiðslu
hverju sinni. Hann tekur með sér
dagskrá forsetans fyrir vinnudag-
inn, sem nú er hafinn, og trúnaðar-
skýrslur þær, sem borizt hafa. For-
setinn hefur líka oft útbúið lista
yfir það, sem hann vill láta fram-
kvæma þennan dag. Síðan ræðast