Úrval - 01.12.1969, Blaðsíða 18
16
ÚRVAL
/■“----------------------------------------------------N
UM KONUNA
• Konan er yndislegasta yf-
irsjón náttúrunnar.
Cowley.
• Falleg kona geðjast aug-
anu, góð kona hjartanu.
Napoleon.
• Umgangist konuna með
umburðarlyndi. Sköpuð var
hún af bognu rifi; guð gat
ekki gert hana alveg rétta.
Goethe.
• Hver sem vill taka álinn
á sporðinum og konuna á orð-
inu, stendur tómhentur uppi
hversu fast sem hann heldur.
Logau.
«V/V(V
• Konan er eins og bjartur
spegill, sem einnig hylst móðu,
ef andað er á hann.
Hippel.
(V(V(V
• Konur eru oft nokkurs
konar gátur. Þegar við vitum
lausnina, iðrar okkur að hafa
lagt okkur svo mjög í líma.
Heyse.
<V(V(V
• Það er ekki eins erfitt að
draga kaðal í gegnum nálar-
auga og að fá konu til að
þegja.
Kotzbue.
V__________________________________/
þeír oft við að nýju þennan sama
dag, annað hvort hittast þeir aftur
eða ræða saman í síma. Einnig hitt-
ast þeir eitt til tvö kvöld í viku
í skrifstofu forseta til þess að rabba
saman. Samband þeirra er vin-
gjarnlegt en einkennist samt af
kvöðum starfa þeirra. Þeir snúa
sér beint að efninu hverju sinni.
Undirmenn Nixons þurfa ekki að
undirgangast þær ofurmannlegu
persónulegu kröfur, sem Johnson
forseti gerði til sinna imdirmanna.
AÐ TAKA ÁKVÖRÐUN
Jafnan þegar þýðingarmiklar
ákvarðanir eru teknar í Hvíta hús-
inu, hefur Kissinger mikilvægu
hlutverki að gegna. Sem gott dæmi
um þetta má nefna viðbrögð Banda-
ríkjanna við skotárás Norður-
Kóreumanna á bandaríska flugvél
af gerðinni EC-121. Orð bárust um
það til Pentagonbyggingarinnar í
Washington, (aðalbækistöðva hers,
flota og flughers Bandaríkjanna,
þýð.) kl. 12,55 aðfaranótt þriðju-
dagsins 15. apríl, að þessarar flug-
vélar væri saknað. Aðstoðarmað-
ur Kissingers í hernaðarmálum
vakti hann með fréttum þessum
klukkan 1,10. Kissinger bað þá sam-
stundis um skýrslu um erindi flug-
vélarinnar og mögulega staðsetn-
ingu. Klukkan 2,25 gat hann svo
tilkynnt, að Norður-Kóreumenn
segðust hafa skotið flugvél þessa
niður, og jafnframt spurði hann yf-
irmenn í Pentagon, hverjar hugs-
anlegar hernaðaráætlanir þeirra
kynnu að verða, hvað framvindu
þessa máls snerti. Þegar Kissinger
fékk staðfestingu á því klukkan 4