Úrval - 01.12.1969, Side 34

Úrval - 01.12.1969, Side 34
3á ÚRVAL Amma gamla, sem er rúmlega áttræð, var um daginn tekin af lög- regluþjóni þar sem hún ók bílnum sínum á fjölfarinni götu. Var hún sökuð um ógætilegan akstur og átti að svipta hana ökuleyfi vegna sjón- depru. Hún var leidd fyrir dómar- ann og átti hann að skera úr um hvort hún væri hæf til þess að aka bifreið eða ekki. Dómarinn var ungur að árum og vissi vart hvern- ig hann átti að bregðast við þessu máli. Hann kvaðst að vísu ekki geta efazt um það, að hún kynni að aka, en kvaðst halda, að hún æki svo ógætilega vegna þess að hún sæi illa. „Ég skal nú bara sýna yð- ur það,“ anzaði sú gamla, sem löng- um hefur hrósað sér af því að hafa aldrei þurft að borga sekt, þrátt fyrir að hafa keyrt á tveim hjól- um fyrir horn alla ævi. Síðan dró hún upp saumnál og tvinna og þræddi þráðinn á nálina á auga- bragði. Svo sneri hún sér að dóm- aranum og sagði: „Reynið þér þetta.“ En honum mistókst og mál- ið var látið falla niður. Það er hlutverk framtiðarinnar að vera hættuleg. , Alfred North Whitehead. 1 fyrrasumar var New Yorkbúi einn í heimsókn í litla fjallaþorp- inu okkar í Klettafjöllunum í Utah, en það er vinsælt meðal ferða- manna. Eitt kvöldið vorum við að ræða um kosti og galla borgarlífs og sveitalífs. Ég sagði, að sveitafólk væri raunsærra og nær raun- veruleikanum, en hann hélt Því fram, að það væri um of verndað fyrir hinum harða raunveruleika lífsins. Á leiðinni til sumarkofanna okkar virtum við stjörnurnar fyrir okk- ur. Það var svo heiðskírt, að það mátti greina hverja stjörnu og hvert stjörnumerki. ,,Almáttugur,“ hrópaði kunningi minn frá New York skyndilega, „þetta er bara alveg eins og í stjörnuathugunarstöð!" Richard Menzies. í útjaðri smábæjar eins í Vesturríkjunum sáum við skilti, sem á stóð: HÆGIÐ Á YKKUR .... STRANGLEGA BANNAÐ AÐ AKA HRAÐAR E'N 25 MlLUR Á KLUKKUSTUND. Viðbrögð mín við þessari viðvörun hljóta að hafa verið nokkuð hæg, því að bráðlega ók ég ofan í djúpa sprungu í götunni. Við héldum, að allt. væri að fara til fjandans. Slíkt var höggið. Nokkrum fetum neðar við götuna gat að líta annað skilti. Og á því stóð aðeins: HVAÐ SÖGÐUM VIÐ EKKI ? Clarenoe D. Stallman. Kennarinn segir við bekkinn: „Börn! Nú eruð þið orðnir unglingar, svo gjörið svo vel að hegða ykkur eins og fullorðið fólk! “
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.