Úrval - 01.12.1969, Síða 48

Úrval - 01.12.1969, Síða 48
46 ÚRVAL og sjómannanna byggjast á sögu- legri staðreynd. Á 4. öld e.Kr. var Myra orðin allmikil hafnarborg og skipakomur tíðar, en landvegir til borgarinnar og frá voru erfiðir og lélegir, enda skolaði regnvatn þeim oft burtu. Biskupsdæmi hans náði um allangt svæði meðfram strönd- inni og nálægar eyjar og vegna allra þessara aðstæðna hefur hann oft ferðast sjóleiðis. Þá hefur hann oft staðið frammi á þilfari eða geng- ið þar um og blessað hina trúuðu, sem veifuðu til hans úr landi eða frá skipum. Þetta hefur verið al- geng sjón þá áratugi, sem hans naut við í biskupsembættinu. Hann fæddist árið 270 e. Kr. í lítilli hafnarborg sem heitir Patara og er stutta dagleið frá borginni Myra. Patara er annars helzt kunn fyrir það, að Páll postuli hafði þar viðkomu í þriðju trúboðsferð sinni. Foreldrar Nikulásar voru kristinnar trúar og töldust til efnafólks. Vegna mikillar trúrækni drengsins var hann settur til að nema klerkleg fræði og fékk mjög góða menntun, — lærði alla kristna trúfræði og gríska heimspeki að auki. Og hér með eru upptaldar einu öruggu staðreyndirnar um líf hans. Nokkrar sagnir greina frá því, að Nikulás hafi verið ofsóttur og meira að segja fangelsaður á stjórnartím- um Diocletians keisara og að á stjórnartímum Konstantíns keisara hafi hann verið viðstaddur fyxsta fund Alkirkjuráðsins, en þá var kristin trú búin að breiðast til margra landa og kirkjunnar menn töldu nauðsynlegt að mynda sam- tök með sér. Þessi fundur var hald- inn í Nicaea árið 325 og þar tók kirkjan einkum afstöðu til villu- kenninga Aríusar. Engar sannanir eru þó fyrir því, að Nikulás hafi verið þar viðstaddur. Eina staðreynd virðist mega draga út úr öllum sögnum um hann og hún er sú, að hann hafi verið óvenju traustur og góðhjartaður maður og skemmtilega laginn að koma góðu til leiðar. Ein þekktasta sagan um hann greinir frá nágranna hans og átti sá 3 uppkomnar og fríðar dætur en var ekki nógu efnaður til þess að geta gefið þeim góðan heiman- mund, enda voru þær allar ógift- ar í föðurgarði. Nikulás biskup komst á snoðir um þetta og nú seg- ir sagan, að hann hafi læðst eina nóttina upp að húsi vinar síns og fleygði handfylli af gullpeningum inn um gluggann hjá honum. Þessir peningar urðu nægilegir til að skapa hinn ánægjulegasta heiman- mund, enda giftist nú elzta dóttir- in fljótlega. Nokkru síðar kom Nikulás biskup aftur að næturlagi í sömu erindagjörðum og næst elzta dóttirin hlaut gott gjaforð skömmu síðar. Nú hugsaði faðirinn sér að komast að því, hver þessi ókunni velgerðamaður hans væri og fylgd- ist með ferðum manna heim að hús- inu á nóttunni. Nikulás kom í þriðja sinnið og þegar faðirinn sá hann, féll hann á kné og vildi þakka hon- um, en Nikulás lagði fingur sinn á varir hans og þvingaði hann til að þegja. Þessi fræga frásögn hefur verið sögð og endursögð gegnum aldirnar og meðal annars orðið frumhugmynd að miklum fjölda málverka.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.