Úrval - 01.12.1969, Side 49

Úrval - 01.12.1969, Side 49
HINN UPPHAFLEGI SANKTI KLÁUS Önnur sögn greinir frá því, að þrír foringjar í her Konstantíns keisara hafi verið ranglega ákærðir fyrir landráð og dæmdir til dauða. Nóttina fyrir aftökuna báðu þeir til Nikulásar biskups um hjálp, þótt hann væri í hundruð mílna fjarlægð. Biskupinn birtist keisaranum þegar í stað í draumi, skipaði honiun að sleppa sakborningunum og ógnaði honum með ægilegri refsingu, ef hann ekki hlýddi sér. Keisarinn varð dauðhræddur og flýtti sér að sleppa mönnunum, þegar hann vaknaði. Fjöldi kraftaverka er eignaður hinum ráðsnjalla biskupi. Eitt sinn var mikið hallæri í borginni Myra og þá vildi svo til, að skip hlaðin hveiti frá Egyptalandi vörpuðu ak- kerum á höfninni. Nú átti hveitið að flytjast í kornhlöðurnar í Kon- stantínópel og auðvitað mundu skip- stjórarnir engu fyrir týna öðru frek- ar en lífi sínu, ef eitthvað af hveit- inu kæmist ekki til skila. Nikulás biskup fór og tjáði skipstjórunum vandræði borgarbúa og sagði: „Ótt- ist ekkert. Látið mig hafa nóg korn handa mínu fólki.“ Skipstjórarnir gerðu svo, en þegar þeir svo komu til ákvörðunarstaðar, reyndist farm- urinn vera ósnertur. Nikulás biskup lézt kringum árið 340 og var jarðaður með mikilli við- höfn og eftirsjá. En allir þeir, sem bágt áttu, héldu áfram að trúa á hann og trúin á kraftaverk hans breiddist norður um Rússland og vestur um alla Evrópu. Sjómenn báru þessa trú frá höfn til hafnar, flutningamenn báru hana eftir skip- gengum fljótum og sölumenn fluttu hana um þjóðbrautir á landi. Fljót- 47 lega var svo komið að allir þeir, sem flutninga önnuðust, beiddust verndar hans. Mynd hans var að finna á skipum hafanna jafnt sem á krossgötum þjóðvega í landi, á brúm og hættulegustu fjallvegum. Samtök iðnaðarmanna og fleiri stéttir skipuðu sér undir verndar- væng hans og hann varð sérstakt átrúnaðargoð og hollvinur skipa- smiða, vínkaupmanna, lyfjafræð- inga, stúdenta og lögfræðinga. Eng- inn hinna heilögu manna jafnast á við hann að vinsældum. Mörgmn kristnum mönnum varð það sorgarefni, þegar borgin Myra féll í hendur hersveita Múhameðs- trúarmanna rúmlega sjö öldum eftir dauða Nikulásar. Sérstaklega áttu ítalskir sjómenn erfitt með að hugsa sér, að trúleysingjar gengju um grafhýsi hans. Því var það, að árið 1087 sigldu 50 menn á 3 kaupskip- um frá hafnarborginni Bari á Suð- ur-ítaliu. Þeir héldu beint til Myra, stigu þar á land og gengu beint að grafhýsi Nikulásar, sem 4 menn gættu. Þeir tóku við digrum sjóði peninga, síðan brutu aðkomumenn lokið af grafhvelfingunni og sigldu á brott með bein átrúnaðargoðs síns. Sigri hrósandi héldu þeir til heima- hafnar og þar var þeim fagnað inni- lega. Hvít steinkirkja var byggð yfir jarðneskar leifar Nikulásar í borg- inni Bari. Hún stendur frammi við sjóinn og er enn í dag einn af mestu helgistöðum kristninnar. Árlega flykkjast pílagrímar þangað, eða 200.000 til jafnaðar. Meðal þeirra eru ungar stúlkur, sem koma til að biðja þess, að þær eignist góða eig-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.