Úrval - 01.12.1969, Page 51

Úrval - 01.12.1969, Page 51
HlNN UPPHAFLÉGI SANKTI KLÁUS 49 biskupskápan að síðum rauðum vetrarkufli en mítrið að loðhúfu. í mörgum löndum gamla heimsins (Evrópu) runnu svo þessar tvær hátíðir, jól og dagur heilags Niku- lásar saman í eina hátíð, vegna ná- lægðar þeirra hvor við aðra og gamli maðurinn frá Myra kom á ný fram sem hlýlegur og vonglæðandi fyrirboði betri og skemmtilegri daga. Því má með nokkrum rétti segja, að á 17. öld hafi heilagur Nikulás lagt upp í eina sjóferð til viðbótar — og í þetta sinn lá leiðin yfir Atlantshafið. Hollenzkir sæfarar settust þá að í New Amsterdam, en þar heitir nú New York, og þeir fluttu margvíslegar siðvenjur frá heimalandinu, einnig þá að einhver gestur kæmi á jólunum til að færa börnunum ýmsar gjafir. Þeir nefndu hann Sinterklaas. Og enskumæl- andi börn á þeim hluta austur- strandar Norður-Ameríku, sem nú er austurströnd Norður-Ameríku, lærðu þetta nafn og gáfu sínum eig- in jólagesti það, en breyttu því of- urlítið til samræmis við enskan framburð. Fyrst varð það Santy Klaas og síðar Santa Claus. Skand- ínavíubúar og afkomendur þeirra í Ameríku bættu svo hreindýrinu og sleðanum inn í hugmyndina um hann og þannig er hann í dag, til- búinn að gegna sínu mikilsverða hlutverki á hverjum jólum. Þetta er frásögn um það, hvernig hinn gamli góðhjartaði biskup í borginni Myra á suðurströnd Litlu Asíu, var tekinn í dýrlingatölu af alþýðufólkinu og er það enn undir nafninu Santa Claus meðal vest- rænna þjóða. Ungur háskólastúdent fékk stöðu hjá miklu timburfyrirtæki í Norð- vesturríkjunum. Hann var úr stórborg á Austurströndinni og vissi ekkert um skógarhögg né timburflutninga á ám og vötnum. En hann sagðist vilja læra þetta allt frá rótum. Yfirmaður hans hugsaði sér að verða við þessari beiðni unga mannsins á eftirminnilegan hátt og kenna honum lexíu, sem hann mundi ekki gleyma fyrst um sinn. Fyrsta starf hans var að framkvæma vörutalningu. Átti hann að telja alla trjábolina, sem voru á floti i stóreflis geymslutjörm. Venjulega aðferðin var sú að ganga af einum trjábolnum yfir á annan og telja þá um leið. Karlarnir, sem voru vanir öllu, sem skógar- högg og vinnslu snerti, hugsuðu nú gott til glóðarinnar. Þeir hlökkuðu til þess að sjá unga monthanann stingast á hausinn hvað eftir annað ofan í ískalt vatnið. En ungi viðvaningurinn lék. sannarlega á þá alla. Hann tók litla iflugvél á leigu og lét fijúga með sig yfir tjörnina. Þar tók hann mynd af trjábolunum og taldi svo bolina eftir stækkaðri mynd. Og þessi aðferð hefur síðan verið viðhöfð, þegar gera skal áriega alls- herjar vör.utalningu vegna skattauppgjörs. Myndin er látin fylgja skatt- skýrslunni, og það hafa aldrei borizt neinar frekari spurningar frá skattinum. Troy Utley.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.