Úrval - 01.12.1969, Side 85

Úrval - 01.12.1969, Side 85
HEIMSPEKINGURINN OG SKÓLASTÚLKAN 83 lof bókmenntamanna um víða ver- öld. Það nægði, að nafnið „Will Durant“ stæði á kili bókar. Þá hlaut hún mikla sölu. Árið 1961 gáfu Simon & Schuster út bók Durants „The Age of Reason Begins". Og bókmenntamenn urðu furðu lostnir, er þeir uppgötvuðu, að bók þessi var skrifuð af „Will og Ariel Durant". Skólastúlkan frá Harlem var nú orðin fullgildur fé- lagi. Því eldri sem þau urðu, þeim mxm meiri vinnu tók hún á sínar herðar. Hún leitaði og rannsakaði og færði honum efni í stríðum straumi. Hann var 78 ára og hún 65 ára, er þau sátu inni í vínstúku Castell- ana Hilton-gistihússins í Madrid þennan heita sumardag. Hann sneri glasinu með ísteinu sitt á hvað, svo að það myndaði blauta hringi á borðinu og sagði henni í tíu þús- undasta skiptið, að hann hefði ekki getað afkastað svona miklu, ef hennar hjálpar hefði ekki notið við. Gullbrúðkaupsdagur þeirra nálgað- ist óðum, og hann sagði án þess að líta á hana, að honum fyndist sem hann ætti að gefa henni einhverja sérstaka gjöf vegna þessa athyglis- verða áfanga. „Nei,“ sagði hún. Jafnvel þótt hann gæfi henni sjálft „Taj Mahal“, mundi slíkt ekki auka ánægju henn- ar hætis hót. Hún sagði, að það væri engin ástæða til þess, að hann gæfi henni nokkra sérstaka gjöf. Hún sagði, að ástin og starfið nægði henni. „Þú hefur rétt fyrir þér,“ sagði hann. „Starf okkar og ást okkar urðu eitt og hið sama.“ Hún faldi andlitið enn á ný í höndum sér. „Ég er gamli félaginn þinn,“ sagði hún. „Þú elskar mig, vegna þess að þú veizt, að ég elska þig svo, að það nálgast vitfirringu.“ Skyndilega skellti hún upp úr. Hann leit upp úr teglasi sínu. „Manstu, þegar ég var í þessum stóra hóp og ætlaði aldrei að geta þagnað og þú varst alltaf að rétta mér diska, fulla af hnetum? Ég át þær bara allar og hélt áfram að tala.“ Bandarískur rithöfundur kom nú til okkar til þess að fá að taka í hönd mikilmennis. Hann heilsaði líka Ariel og spurði hana, hvort hún héldi, að hjónaband þeirra mundi endast. Og það stóð aldrei á svörum frá henni. „Hann var kennari minn og leiðbeinandi fyrir 50 árum. Hann er enn kennari minn og leiðbeinandi." Dr. Durant hristi höfuðið ofsa- lega. Það lá við, að maður færi hjá sér vegna þessarar heitu ástar þeirra. Ariel rétti fram vinstri höndina og sagði: „Hann gleymdi að kaupa handa mér giftingarhring. Og ég hef aldrei saknað þess, að eiga hann ekki.“ ☆ Maður verður að toúa yfir vissum skammti af skynsamlegri fávizku til þess að komast nokkuð áfram. Charles Kettering.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.