Úrval - 01.12.1969, Síða 90
88
ÚRVAL
einkenni. Hann tók einnig eftir því,
að það var greinilegt, að hún hafði
horazt. Rif hennar höfðu áður verið
þakin spiki, en nú sást greinilega
móta fyrir þeim í gegnum húðina.
En hið ömurlegasta var samt, að
hið elskuleg og ómótstæðilega bros
Violettu var nú horfið, hvort sem
það var vegna breytingar á lögun
höfuðsins, þegar hún varð svo mög-
ur, eða það var af völdum þung-
lyndis, er væri sjúkdómnum sam-
fara.
Pepino greip nú til varasjóðs líru-
seðlanna, sem hann hafði nurlað
saman með svo mikilli fyrirhöfn.
Hann taldi þá aftur og aftur. Þetta
var ekki svo lítið, þrjú hundruð
lírur. Og svo sótti hann Bartoli
dýralækni.
Dýralæknirinn skoðaði Violettu
og gaf henni inn meðal. En hún hélt
samt áfram að horast og varð stöð-
ugt meira lasburða. Að lokum
ræskti hann sig og sagði hikandi:
,,Ja.... ég veit ekki.... það er
erfitt um þetta að segja. Það gæti
bæði verið eitt og annað að henni...
til dæmis af einhverju skordýri,
sem við höfum ekki áður orðið vör
við hér í héraðinu, eða þá að ein-
hver sýkill hefur bitið sig fastan í
þörmunum.“ Hvernig átti hann að
geta sagt nokkuð ákveðið um þetta?
Hann mælti með því, að Violetta
fengi góða hvíld og aðeins auðmelt-
anlega fæðu. Kannske hjaraði hún,
ef sjúkdómurinh yfirgæfi hana og
það væri guðs vilji, að hún lifði
áfram. Að öðrum kosti dæi hún á-
reiðanlega, og þannig jn’ði endir
bundinn á allar þjáningar hennar.
Þegar dýralæknirinn var farinn,
lagði Pepino höfuð sitt utan í síðu
Violettu, svo að stutta, svarta hárið
hans straukst við loðna húð hennar.
Hann fann, að hún gekk upp og
niður af mæði. Það var eins og hún
gripi andann á lofti. Hann tók til
að gráta beisklega. En þegar hann
hafði jafnað sig að mestu, var hann
búinn að gera sér grein fyrir því,
hvað hann skyldi gera. Ef ekki
væri neina hjálp að fá Violettu til
handa hér á jörðu, yrði hann að
snúa sér til æðri staðar. Hann hafði
gerzt svo djarfur að ákveða að fara
með Violettu inn í grafhvelfinguna
undir dómkirkjunni, þar sem jarð-
neskar leifar hins heilaga Frans af
Assisi hvíldu, því að sá dýrlingur
hafði elskað svo innilega allar þær
lífverur, sem guð hafði skapað,
einnig fugla og ferfætlinga, bræður
okkar og systur, sem lifðu Honum
til heiðurs. Og svo ætlaði hann að
biðja heilagan Frans um að lækna
Violettu. Pepino var ekki í nokkr-
um vafa um, að þessi uppáhalds-
dýrlingur hans mundi bænheyra
hann, ef hann fengi bara að sjá Vio-
lettu.
Um allt þetta hafði Pepino fræðzt
hjá Föður Damico, sem talaði um
hinn heilaga Frans á alveg sérstak-
an hátt, þ.e. eins og hann væri enn
lifandi maður, sem maður gat átt
von á að hitta, er maður gekk fyrir
horn á torginu í Assisi eða beygði
inn í einhverja þröngu götuna.
Þar að auki var um að ræða for-
dæmi fyrir þessu. Giani vinur hans,
sonur Niccolos ekils, hafði farið með
veika kettlinginn sinn niður í graf-
hvelfinguna og beðið heilagan Frans
um að lækna hann. Og kettlingnum