Úrval - 01.12.1969, Page 97

Úrval - 01.12.1969, Page 97
LITLA KRAFTAVERKIÐ 95 var ekki óvingjarnlegt, því að hann var vanur þessum barnalegu og saklausu bónum. Samt hristi hann höfuðið og sagði, að Hans heilag- leiki væri mjög önnum kafinn mað- ur, sem væri ekki hægt að fá við- tal við svona alveg fyrirvaralaust. Og svo lamdi hann spjótexinni nið- ur í flísarnar og lagði hana á ská fyrir hurðina til þess að sýna, að honum væri alvara. Pepino hörfaði aftur á bak und- an honum. Hvað dugði lífsreglan hans gagnvart slíku valdi og slík- um mikilfengleika? En samt var það hugsunin um hið viturlega ráð O’Hallorans undirliðþjálfa, sem stappaði í hann stálinu og hvíslaði því að honum, að hann væri neydd- ur til þess að knýja dyra í Vatikan- inu á nýjan leik. Hinum megin torgsins sá hann gamla konu sitja undir sólhlíf. Hún var að selja vorblóm. Suma þeirra, sem heimsóttu Péturskirkjuna, langaði til þess að leggja blóm á altari uppáhaldsdýrlingsins síns. Konan var nýbúin að sækja þau til blómsölutorgsins, og þau voru svo fersk, að það voru enn glitrandi daggardropar á krónublöðunum. Þessi sýn hafði þau áhrif á Pepino, að hann fór að hugsa heim til Assisi og Föður Damicos og alls þess, sem hann hafði sagt honum um ást hins heilaga Frans á blómunum. Pepino dró þá ályktun af þeirri frásögn, að fyrst Frans af Assisi, sem hafði verið mjög heilagur maður, hafði verið svona hrifinn af blómum, hlyti páfanum líka að þykja vænt um þau, af því að hann hlaut að vera enn heilagri vegna síns háa embættis. Hann keypti pínulítinn blómvönd fyrir 50 lírur. Nokkrar liljur gnæfðu upp yfir þyrpingu af dökkum fjól- um, en við hlið þeirra voru litlar rauðar rósir og gular stjúpmæður. Utan um vöndinn var vafið græn- um blöðum, og svo var silkipappír utan um allt saman. Hann fékk pappírsörk og blý- ant í lítilli búð, þar sem seld voru póstkort og minjagripir. Og svo skrifaði hann þetta litla bréf með prentstöfum með talsverðri fyrir- höfn: Kœri og mjög tigni Heilagi faðir! Þessi blóm eru til þín. Viltu ekki leyfa mér að koma upp til þín, svo að ég geti sagt þér frá ösnunni minni, henni Violettu, sem er álveg að deyja, og þeir vilja ekki leyfa mér að fara með hana niður til hins heilaga Frans, svo að hann geti læknað hana. Ég á heima í Assisi, en ég er kominn alla leið hing- að til þess að tala við þig. Kœr kveðja, þinn Pepino. Svo sneri hann aftur að dyrum Vatikansins, fékk varðmanninum blómvöndinn og bréfið og sagði biðjandi röddu: „Viltu ekki fá páf- anum þetta frá mér? Ég er viss um, að hann tekur á móti mér, þegar hann fær blómin og les það, sem ég hef skrifað.“ ÁHEYRN HJÁ PÁFANUM Þessu hafði varðmaðurinn ekki
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.