Úrval - 01.12.1969, Page 103

Úrval - 01.12.1969, Page 103
LITLA KRAFTAVERKIÐ 101 Biskupinn dró svo djúpt að sér andann, að það líktist andvarpi. „Er þetta mögulegt?“ stundi hann upp. ,,Er það hugsanlegt, að þetta sé arfur sá, sem hinn heilagi Frans lét eftir sig? Fra Leo minntist á hann í ritum sínum. Hann var fal- inn fyrir mörgum öldum, og síðan hefur enginn getað fundið hann.“ Abótinn stundi hásri röddu: „Inni- haldið! Við skulum gá, hvað er í öskjunni.... Kannske er það eitt- hvað verðmætt." Biskupinn hikaði andartak, en svaraði svo: „Það er kannske bezt fyrir okkur að bíða svolítið. Það e'tt að finna þessa öskju er krafta- verk í sjálfu sér.“ En Faðir Damico, sem var Ijóð- rænn í eðli sínu, var ekki á sama máli. Fyrir honum var Frans af Assisi eins lifandi og menn nútím- ans. Hann sagði: „Opnið hana. Ég bið ykkur ... opnið hana! Allir við, sem erum hér saman komnir, erum auðmjúkir í trú okkar. Það hljóta að vera sjálf H'mnavöldin, sem hafa beint okkur að þessum stað.“ Ábótinn hélt á ljóskerinu. Stein- höggvarinn losaði varlega um bönd- in utan um öskjuna með sínum grófu verkamannshöndum, og hon- um tókst að opna lásinn með því að beita lagni. Askjan var svo vel lokuð, að hún var alveg loftþétt. askjan var opnuð. Og hún afhjúp- aði nú það, sem hafði verið falið í henni fyrir rúmum sjö öldum. Það var kaðalsbútur úr hampi með hnúti á. Kannske hafði kaðall þessi verið notaður sem belti fyrir munkskufl. Og í hnútnum lá hveiti- ax, sem var svo ferskt að sjá, að það var líkt og það hefði vaxið í gær. Þarna var líka jurt, sem geng- ur undir nafninu ,,kúreki“. Stilkur- inn var stinnur og stjörnumyndað blómið einnig í góðu ásigkomulagi. Og við hlið þess lá falleg dúnfjöður af litlum fugli. Mennirnir störðu þögulir á þetta eins og þeir væru að reyna að gera sér grein fyrir merkingu þeirri, sem vár fólgin í innihaldi öskjunnar. Faðir Damico felldi tár, því að hið honum fært að sjá greinilega fyrir sér hinn heilaga Frans, slitinn, las- burða og hálfblindan, reika syngj- andi yfir hveitiakur með kaðal bundinn um mitti sér. Þetta var kannske fyrsta blómið, sem hann hafði fundið í fjallshlíðinni, er snióa vetrarins hafði leyst og hann hafði kallað það „Systur kúreka“ og lof- sungið það fyrir fegurð þess og yndisþokka. Faðir Damico sá emnig fyrir hugskotssjónum sínum litla fuglinn fljúga niður til hins heilaga Frans án nokkurs óttamerkis, setj- ast á öxl hans og skilja síðan eftir dúnfjöður í hendi hans. Faðir Dam- ico varð gripinn slíkri hamingju- kennd, að honum fannst sem hjarta hans mundi bresta. Það lá einnig við, að tárin kæmu fram í augu biskups, þegar hann túlkaði á sinn hátt merkingu þá, sem fólginn var í þessum fundi þeirra. „Sko, það er alveg augljóst, að hinn heilagi Frans hefur sent okkur boðskap!" sagði hann. „Fá- tækt, kærleikur og trú. Það er arf- ur hans okkur öllum til handa.“ „Fyrirgefið,“ greip Pepino nú fram í, „en megum við Violetta nú fara inn í grafhvelfinguna?“
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.