Úrval - 01.12.1969, Qupperneq 129

Úrval - 01.12.1969, Qupperneq 129
127 ar, hætti hann öllum lækningatil- raunum og lét sér nægja að láta falla nokkrar mildilegar athuga- semdir um hlýðni og skilning. Leið þá ekki á löngu þar til hikstinn var horfinn. Nokkur tilfelli af hiksta hafa orð- ið þekkt í sögu læknisfræðinnar. Ein ung kona hikstaði t.d. í 47 daga samfleytt; önnur í þrjú ár, áður en henni batnaði. Það er alls ekki óalgengt að sjá blaðafyrirsagnir um menn með slæman hiksta. Árið 1935 gerði hiksti, sem staðið hafði í tæpar 3 vikur, út af við hinn sjötuga Frank E. Owens, borgar- stjóra í Galena í Illihois. Og í sjúkrahúsinu í Saratoga Springs lézt J. McCormick eftir að hafa hikstað í 4 V2 dag. Edward O'Connor, lög- reglumaður í Buette í Montana, fékk afleitan hiksta vegna þess hve einn starfsbróðir hans var fyndinn. Hláturkviða hans endaði með sex mánaða óstöðvandi hiksta, sem dró hann til dauða. Svipað kast, sem þó stóð miklu lengur varð William nokkrum Wells frá Dayton í Ohio að bana. Dr. Roland K. Wright hefur sagt mér, að algengasta ráðið og það sem reynslan hafi sýnt að kæmi oftast að gagni sé hin svokallaða „papp- írspokaaðferð". Maðurinn dregur þá bréfpoka (eða eitthvað annað) yfir höfuð sér, og andar þannig aftur að sér kolsýrunni, sem hann andar frá sér. Þessi aðferð byggist á skynsam- legum vísindagrunni, þar sem hún minnkar súrefnið en eykur kolsýru- magnið í blóðinu, sem aftur verkar á heilann og dregur úr tauga og vöðvaþenslu. Sú hætta er samfara þessari aðferð, ef maðurinn stjórn- ar henni sjálfur, að hann getur fall- ið í yfirlið af súrefnisskorti. Það er því miklu öruggara að láta lækni framkvæma sams konar aðferð með því að setja grímu fyrir andlit þér og láta þig anda að þér blöndu af kolsýru og súrefni. Hér kemur dálítið úrval af þeim aðferðum, sem margir telja óbrigð- ult ráð við hiksta: frysta á sér eyr- un; óska sér yfir tebolla á hvolfi; láta einhvern slá á magan ná sér; drekka vatn úr glasi af þeim barm- inum, sem frá snýr og hringsnúa sér á meðan, eða drekka úr tveim glösum í senn; leggja tvo kalda fimmeyringa aftan á hálsinn; slá á húð sína með heitu hárlokkajárni; klípa sig í eyrnasnepilinn í fimm mínútur og hringsnúast á meðan. Loks er svo ráðið, sem kom á prent í gömlu dagblaði í Boston: „Haltu niðri í þér andanum og teldu upp að hundrað. Ef það nægir ekki, þá teldu upp að þúsund.“ Það getur verið, að það séu m-argar flísar í stiga velgengninnar. En Þeir einir, sem eru að renna niður stigann, þurfa að hafa áhyggjur af þeim. J. B.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132

x

Úrval

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.