Úrval - 01.07.1971, Qupperneq 23
AÐ VIRKJA HIÐ VOLDUGA MEKONGFLJÓT
21
nefndinni.... Thailand leggur til
sement og raforku til þess að reisa
Nam Ngumstíflugarðinn gegn lof-
orði Laosbúa um, að þeir greiði
þeim síðar í kílówattstundum. Kam-
bodía stendur einnig straum af bygg
ingu brúar yfir Mekongfljótið, þ.e.
brúar milli Kambodíu og Suður-
Vietnam.
Jafnvel kommúnistar hafa smit-
azt. Ráðamenn í Hanoi hafa auga-
stað á raforku frá fljótinu fyrir iðn-
að Norður-Vietnam. Og á samninga-
fundunum í París hafa þeir gefið í
skyn ósk um að taka síðar þátt í
framkvæmd þessari. Og Pathet Lao
skæruliðaforingi virðist hlynntur
framkvæmd áætlunarinnar: „Það
eru 700 Pathet Lao skæruliðar í
frumskóginum í tæplega sjö mílna
fjarlægð frá okkur“, segir japansk-
ur verkfræðingur við Nam Ngum-
stíflugarðinn, sem er í byggingu.
„Þeir gætu yfirbugað okkur, en þeir
láta okkur samt í friði. Þeir gera
árásir allt í kringum okkur, en þeir
láta byggingarstaðinn samt alger-
lega í friði“!
Rauðliðar hætta augsýnilega á
það, að einhvern tíma muni þeir
eignast fullgerðan stíflugarð. „Lík-
urnar eru meiri til, að það fari á
hinn veginn", sagði ofursti einn í
hinum konunglega Laosher. „Áður
en framkvæmdin hófst, hafði áróð-
ur Pathet Laos mikil áhrif. En núna
veitir stíflugarðurinn fólkinu von.
Það skilur, að það er í þeirra hag,
að friður haldist. Hver kærir sig
um að vera skæruliði í foraði frum-
skógarins, þegar hann getur lifað
góðu lífi á áveitubúgarði"?
Hin verkfræðilegu vandamál, sem
bíða lausnar við framkvæmd áætl-
unarinnar, eru slík, að ímyndunar-
aflið hrekkur ekki til. Stór vatna-
hlið í Tonle Sapþveránni í Kam-
bodíu verða til dæmis að varna
því, að sjór úr Kínahafi streymi
upp eftir ánni. Þau hleypa jöfn-
um straumi árvatns í gegn til þess
að hamla á móti aðstreyminu. Og
hugsið ykkur, hvernig það hlýtur
að vera að flytja rafalshjól til Pa
Mong, sem vegur hvorki meira né
minna en 600 tonn! Verkfræðingar
voru ekki á eitt. sáttir um það, hvort
þeir ættu að hætta á að draga það
á pramma yfir flúðir Mekongfljóts
eða að reyna að koma því í gegnum
frumskóginn með einhverju móti.
Það var ekki til neinn lyftihegri á
öllu Kyrarhafssvæðinu, er væri nógu
stór til þess að lyfta því og setja
það niður á sinn stað. Lausnin var
því þessi: Hjól þetta hefur verið
framleitt í þrem hlutum. Það eru
til lyftihegrar í Perluhöfn á Hawaii-
eyjum, sem geta lyft 200 tonnum.
Hin mannlegu vandamál eru enn
WREVFILL
Sími 85522