Úrval - 01.09.1974, Qupperneq 8
6
ÚRVAL
allri hreyfingu og röskun. Spelkur
eru þar bezta vörnin bæði fyrir
hreyfingu og meiri meiðslum. En
kunnir þú engin ráð, þá reyndu að
halda hita á sjúklingnum og hafa
hann kyrran, meðan beðið er eftir
sjúkrabifreið.
10. C) Hægur líkamsvarmi er
greiðasta leiðin til að draga úr
minni háttar kali. Bezt er að nota
lófann til að verma kalinn vanga
drengsins. En séu hendur og fætur
i hættu gagnvart kali þá stingdu
þeim í handarkrikann undir treyj-
unni þinni, en færðu barnið fyrst
úr vettlingum eða skóm. Alvarlegt
kal þarfnast tafarlaust læknismeð-
ferðar og sjúkrahúsdvalar.
ÁN
Áfengi og apar.
Hvers vegna þróazt lifrarsjúkdómar svo oft af áfengisneyzlu?
Margir læknar, sem athugað hafa hneigð áfengissjúklinga t.il að
drekka meira en þeir eta, telja næringrskort aðalorsök þess. En
tveir vísindamenn, annar frá Sinaiháskóla hinn við Bronx spít-
alann í New York, gefa nú skýrslu um, að áfengið eitt valdi lifrar-
skemmdum. Jafnvel hjá kappöldu fólki getur áfengi verkað sem
eitur á lifrina.
Þeir gerðu tilraunir á bavíönum, sem eru að flestri gerð líkir
mönnum. Helmingurinn af 26 öpum, það er að segja 13, voru aldir
á venjulegum fæðishitaeiningum en aðrir á jafnmörgum hitaein-
ingum áfengis.
Allir aparnir, sem aldir voru á áfenginu, urðu háðir því á hrylli-
legan hátt. Tveir urðu fárveikir af Delerium Tremens, og þó var
hver tilraun aðeins í 5 daga.
Tilraunum var nú haldið áfram með jöfnu millibili um fjögra
ára skeið. En þá voru allir aparnir. sem áfengis neyttu, þrátt fyrir
ágætt fæði, orðnir lifrarveikir, eða sjúkir á annan hátt. En þar
eð ekki gat verið um neinar aukaverkanir annarra efna að ræða
var sannað, að áfengið eitt olli þessum sjúkdómum. Áfengisskammt-
ir verða bví ekki hindraðar með góðu fæði.