Úrval - 01.09.1974, Blaðsíða 95

Úrval - 01.09.1974, Blaðsíða 95
93 ÞAÐ, SEM ÉG FÆ í PÓSTINUM „Mér finnst mikilvægara að útbúa matinn handa litla barninu, hita kaffi, sjá um morgunmat handa stærri börnunum, útbúa skólanest- ið þeirra, sjá um að þau hafi hreina vasaklúta, skólabækurnar, strætis- vagnafargjaldið og að réttur skór sé á réttum fæti.“ Kona í Toledo átti síðasta orðið í þessum umræðum með eftirfar- andi: „Maðurinn minn er póstur. Ég þori að veðja, að það er hann, sem hefur skrifað þetta bréf. Hann hefur aldeilis úr háum söðli að detta! Þið ættuð að sjá hann, þegar hann á frí!“ Síðan þetta var, hef ég komizt að því, að lesendur mínir eru penna glaðasti, illgjarnasti og elskuleg- asti þverskurður mannkynsins í öll um heiminum —• og aldrei ánægð ari, en þegar þeir geta rekið eitt- hvað ofan í mig. Ógleymanleg reynsla var barátt- an um rúmfötin. Kona, sem kall- aði sig „Tvær sængur“, skrifaði, að eftir að eiginmaður hennar hefði haldið langa ræðu um ákjósanlega eiginleika nýs sængurfataefnis, hefði hann bætt við þessari hættu- legu setningu: „Hvers vegna hef- urðu ekki svona alltaf? Svona eru sængurfötin hjá mömmu!“ Konan tilkynnti honum, að móðir hans hefði áreiðanlega straujað sængur- fötin, en hún ætlaði sér aldeilis ekki að gera það. Þessu fylgdi há- vaða rifrildi. Það endaði með því, að hún skrifaði mér til að spyrja, hvort mér fyndist að eiginkona ætti að strauja rúmfötin. Ég svaraði: ,,Já, ef það er svona eftirsóknarvert í augum eigin- manns þíns að sofa við straujuð sængurföt, er vel þess virði að eyða hálftíma á viku til þess að gera hann hamingjusaman.“ Fyrir þessa ráðleggingu var ég stimpluð svikari við kyn mitt og liðhlaupi. Kona í Utica, N. Y., endaði reiði- þrungið bréf sitt með eftirfarandi: „Það er auðvelt fyrir þig að sitja þarna í skrautíbúðinni þinni þarna í Chicago, Ann Landers, og finna upp aðferðir fyrir okkur venjuleg- ar húsmæður til að drepa okkui' með ennþá meiri vinnu. Ég þori að veðja, að þú hefur aldrei straujað lak eða sængurver á allri þinni ævi.“ Ég sagði þessum Utica-lesanda, að ég hefði straujað þó nokkuð mörg lök og sængurver um dag- ana. „Staðreyndin er,“ sagði ég í svarinu, „að ef öll lök og sængur- ver, sem ég hef straujað, væru sett enda við enda, myndu þau sjálf- sagt ná frá Chicago til Utica.“ Þetta svar þaggaði niður í kon- unni, en vakti karlmennina af vær- um blundi. Það var svo að sjá, sem allir karlmenn, sem skreiðzt hefðu gegnum gagnfræðaskóla, settust nú við að reikna út fjarlægðina milli Utica og Chicago, meðallengd á laki og sængurveri og hvaða tíma það tæki að strauja slíka hluti. Prófess- or einn í háskólanum í Pittsburgh tilkynnti mér, að ég hefði þurft að strauja 55 lök eða sængurver á hverjum degi síðastliðin 60 ár, til þess að þekja þessa vegalengd. Frammi fyrir slíkum útreikningum varð ég að viðurkenna, að ég hefði tekið full mikið upp í mig.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.