Goðasteinn - 01.09.1962, Page 5
Fylgí úr hlaði
Ýmsum þykir það vafalaust að bera í bakkafullan lækinn, að
hefja útgáfu nýs tímarits í okkar ágæta landi, þar sem svo mörg
eru fyrir. Sennilega munu líka vera einhverjir, sem ekki spá þessu
riti glæstri framtíð né langlífi. Við, sem stöndum að tímarit-
inu, gerum okkur vissulega fulla grein fyrir fjöimörgum erfið-
leikum, er fylgja útgáfustarfinu. En við höfum á því bjargfasta trú,
að Goðasteinn eigi nokkru hlutverki að gegna og leyfum okkur
að vænta þess, að innan skamms verði kaupendahópurinn svo stór,
að nægi til að standa straum af útgáfukostnaði. Og þótt við séum
fremur iila í sveit settir með tilliti til sölu og dreifingar, treystum
við á liðsinni margra góðra samstarfsmanna, er leggja vilja málinu
lið.
Efni Goðasteins munum við leitast við að hafa svo fjölbreytt,
gott og vandað, sem kostur er. En megináherzlu leggjum við á að
bjarga alls kyns þjóðlegum og ménningarsögulegum fróðleik. Við
vitum, að fjölmargir eiga í fórum sínum ýmislegt efni, er vel á
heima í riti þessu, og vonumst til, að þeir sömu séu fúsir til að
miðla okkur og lesendunum nokkru þar af. Efni, sem við erum
einkum fúsir til að birta, er t. d. endurminningar um merka og
sögulega atburði, frásagnir af atvinnuháttum og lífi fólks á fyrri
tímum, ferðasögur, þjóðsögur, minningargreinar, þættir um bók-
menntir og sagnfræði, lausavísur, smásögur og sitthvað fleira.
Myndir munum við birta með frásögnum, svo sem við verður
komið.
Godasteinn
3