Goðasteinn - 01.09.1962, Síða 8

Goðasteinn - 01.09.1962, Síða 8
Þú skildir, að andans og valdsins vegsemd skín í vizku og rausn, - ekki oflæti þótta né prjáls: Að höfðinginn skyldi meistari vera þess máls, sem meitlað stendur á grunni eilífra raka. Að guð á æðstu aðild mannlegra saka og efsta dómsorð hans náð, sem ei þrotnar né dvín. Að draga til sátta, deyfa eggjarnar hörðu, skal dýrð þess valds, sem bindur og leysir á jörðu. Og stöpullinn hóf sig stoltur við Vörðufells egg, steindur og fáður og lýstur með skrif og pent. Þar tvinnuðust þjóðlegur hagleikur, heilög mennt. Þín hugsjón og trú höfðu viljað og skapað hann báðar. Á hvelfdum ræfrum heilagrar ritningar skráðar, en höfugir reflar neðra um skarir og vegg. Hér stóð hann, kastali drottins, vígður og varinn að vera á íslandi himna konungsins arinn. Og innst í kór fyrir augum á breyskri hjörð stóð öldum saman landsins fegursta smíð: Skrín hins heilaga Þorláks, en þrautir og stríð voru þjóðarbarnsins vegur um aldirnar næstu. Þú vissir gjörla, að uppi í hæðunum hæstu sló hjarta drottins ríkara en sýnt yrði á jörð. Hér stóð þess upphafin ímynd á greyptum stalli: Andsvar lifandi guðs við mannlegu kalli. Og hvenær varð þjóðin svo frjáls, að frelsarans orð flutt á heilögum stað yrði reykur og hjóm? Og hvenær svo voldug, að drottins og sögunnar dóm eitt dægurbarn gæti með sérþóttans skóhæl mulið? Ráð guðs, hið heilaga, hrópað af þökum og hulið skal hljóma héðan um vora bjartleitu storð og vitarnir tendrast, sem vegi fólksins lýsa, og vegur hins nýja jafn hinu forna rísa. 6 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.