Goðasteinn - 01.09.1962, Side 18

Goðasteinn - 01.09.1962, Side 18
þær aftur um aldamótin 1700. Ættir Bergsteíns eru öllu þekktari í íslenzkri sögu. Faðir hans, Einar ísleifsson, var kominn í beinan karllegg af Eyjólfi Einarssyni í Stóra-Dal undir Eyjafjöllum, tengdasyni Jóns Arasonar biskups, og niðjum hans, Höfðabrekku- mönnum í Mýrdal. ísleifur Gissurarson, á Seljalandi, afi Bergsteins, var mikill sæmdarbóndi. Það er í minnum haft, að einu sinni kom hann í fjárhús sitt seint um kvöld til að hrista upp hey í jötum. Hann var um það bil að hverfa til baka, er maður kom inn í húsið. Isleifur dró sig í hlé, og maðurinn veitti honum enga eftir- tekt í rökkrinu. Hann hramsaði kind úr hópnum, dró hana til dyra og dokaði við. Að andartaki liðnu las hann Faðirvorið í heyr- anda hljóði, sleppti kindinni og fór leiðar sinnar. Isleifur bar kennsl á manninn, sveitunga, er bjó við mikla fátækt með stóran barnahóp. Daginn eftir valdi hann vænsta sauð sinn og sendi manninum og var honum meira innan handar. Frá þessu sagði hann iöngu seinna, en nafn mannsins fylgdi aldrei sögunni. Fyrri kona Einars fsleifssonar var Sigríður Auðunsdóttir, prests á Stóruvöllum á Landi, Jónssonar, og konu hans, Sigríðar Magnús- dóttur frá Indriðastöðum. Sigríður á Seljalandi var hefðarkona í sjón og raun og hafði framazt í Danmörku, sem þá var óvenju- legt um sveitakonur. Venjulega gekk hún á útlendum búningi, brá þeirri venju, er hún gekk til altaris, klæddist þá skautbúningi og reið í honum til Dalskirkju. Bergsteinn og Anna fluttu frá Tjörnum að Fitjarmýri 1883 og bjuggu þar lengi rausnarbúi. Gestnauð var mikil á Fitjarmýri og gestrisni frábær. Það var föst regla hjá Önnu að gefa öllum vetrar- gestum mat, að sumarlagi gaf hún fremur kaffi eða aðra vökvun, ef gestir komu utan matmálstíma. Matgjafir fóru líka oft út af heimilinu til fátækra manna, sem margir voru á þeim árum. Berg- steinn bóndi var lengi fengsæll formaður við Fjallasand og sá heimili sínu jafnan vel borgið. Oft varð að hella á könnuna á Fitjarmýri, en langt til kaupstaðar að sækja. Einu sinni brenndi Anna síðustu baunirnar á sumardaginn fyrsta. Mælti hún þá með nokkurri áhyggju: „Hvenær skyldi ég næst eignast í könnuna?“ Þetta ár voru sumarpáskar. Á annan í páskum var messað í Stóra-Dal. Anna var lasin og treysti sér ekki til kirkju, en maður 16 Goðasteimi

x

Goðasteinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.