Goðasteinn - 01.09.1962, Page 22
Nálar sporið nett og smátt
nær oft lengra og hærra,
en þeirra spor, sem hoppa hátt
og hafa í skrefi stærra.
Sá er enginn sporaspar,
né spyrnir í skyldutauminn,
sem sporin vilja og verksnilldar
vinnur í ævisauminn.
Með virðingu og kærum heillaóskum.
Sigurður Einarsson í Holti.
Heiðurskonan frú Vilheimína Ingibjörg Filippusdóttir að Hell-
um í Landsveit sendi Einari nokkrum árum seinna kveðju, sem er
verð þess að halda til haga. Fer hún hér á eftir:
Hellum á Landi, io. júní 1961.
Kæri vinur! Það var í vetur, þegar þú varst veðurtepptur hjá
okkur á Hellum, að ég fór að hugsa um liðna daga, þegar þú
komst til okkar, og við hjónin og krakkarnir hlökkuðum til að
fá nýjar flíkur saumaðar eftir þig. Urðu þessar vísur þá til:
Þín var höndin hög og slyng,
hjálpaði frá baga
alla daga, ársins hring,
án þess neitt að klaga.
Þá var ekki þelið kalt,
þó var lítil krafa.
Þakka ég þér þúsundfalt
þessa liðnu daga.
Ég er hálffeimin að láta þig sjá þetta eftir mig, því mér
lætur ekki vel að yrkja, en þú hefur jafnan glatt þá, sem þú hefur
rætt við, og enginn óveruskapur í fasi eða framkomu, og það á
við mig. Blessaður alltaf.
V. Ingibjörg Filippusdóttir.
20
Goðasteinn