Goðasteinn - 01.09.1962, Síða 24

Goðasteinn - 01.09.1962, Síða 24
Um tvítugsaldur gerðist ég sjómaður á millilandaskipi, og þar með rættist loks sá draumur minn að komast út yfir pollinn og sjá með eigin augum fjarlæg lönd og framandi þjóðir. Síðan hef ég flest ár ferðazt meira og minna til annarra landa sem sjó- maður, námsmaður og venjulegur ferðamaður og sífellt séð og heyrt eitthvað, sem vakti athygli mína og veitti mér ánægju. Þó var það alltaf eitt, sem ég fann, að ég átti ógert. Ég hafði aldrei komið til Parísarborgar, fegurstu og frægustu borgar veraldarinn- ar. Árin liðu hvert af öðru, og ósk mín um að líta París rættist ekki. Svo bar það til snemma í júní í sumar, að hringt var til min frá Reykjavík. Ég tók símann án nokkurrar eftirvæntingar, því að ég bjóst aðeins við, að einhver áhyggjufullur faðir eða móðir ætlaði að biðja um skólavist fyrir dreng eða telpu, sem lærði lítið heima og þarfnaðist annars umhverfis. En aldrei þessu vant reyndist það ekki svo, því að í símanum var góður vinur minn, og erindi hans var að spyrja, hvort ég mundi nokkuð hafa á móti að fara í nokkurra daga heimsókn til Parísar í boði Atlantshafs - bandalagsins til að kynnast lítillega starfi þess þar. Félag vest- rænna samtaka í Reykjavík hafði beðið þenna vin minn að koma þessari fyrirspurn á framfæri. Varð ég bæði glaður og hrærður við þessi tíðindi og taldi enga meinbugi á, að ég gæti farið. Var gert ráð ufyrir að senda sex manna sendinefnd síðast í júní í umrædda för. Dagarnir liðu óðfluga við margvísleg skrifstofustörf fram yfir 20. júní, og áður en varði, var komið að því, að ferðin skyldi hefjast. Á sólbjörtum morgni 26. júní mætti ég á flugvellinum í Reykjavík. Eftir að hafa farið gegnum vegabréfaskoðun og kynnzt þar óvenju mikilli hjálpsemi og lipurð afgreiðslumannsins, steig ég upp í flugvélina Hrímfaxa, og innan skamms renndi þessi silfur- skínandi farkostur sér upp í himinblámann og tók stefnu ofar öllum skýjum í suðlæga átt. Brátt lágu íslandsfjöll að baki, og mikið ævintýri var byrjað. Ég uppgötvaði fljótlega samferðamenn mína til Parísar, en þeir voru: Einar Birnir, verzlunarmaður í Reykjavík, Stefnir Helgason, verzlunarmaður í Kópavogi, Björn Arason, kennari í Borgarnesi, 22 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.