Goðasteinn - 01.09.1962, Page 41

Goðasteinn - 01.09.1962, Page 41
safna saman hóp glæpafólks úr fangelsum hofuðborgarinnar, og var þar jafnmargt karla og kvenna. Síðan voru þessir vesölu ein- staklingar vígðir í heilagt hjónaband af handahófi og fluttir til Grænlands og sleppt þar á land. Þessi stofn dönsku byggðarinnar varð, sem vænta mátti, ekki til frambúðar. Fólkið þoldi ekki loftslagið og kunni lítt að bjarga sér og dó fljótt út með öliu. Rekstur „Grænlenzka verzlunarfélagsins“ gekk og með af- brigðum illa, og má segja, að skaði einn og skapraun hlytist af þessum fyrirtækjum. Það var því varia hægt að búast við, að konungur tæki vel erindi Povels Juels, er hann einn góðan veður- dag kom með nýjar og umfangsmiklar tillögur viðvíkjandi Græn- landi. Þessar tillögur voru þess efnis, að konungur legði til vel mönnuð skip, sem siglt yrði til Grænlands undir forustu Juels, strendur landsins kannaðar, settar upp verzlunarstöðvar, stofnað til margvíslegs veiðiskapar á sjó og landi og tilraunir gerðar til landnáms. Konungur hafnaði þessum tillögum að öllu, og Juel skildist, að vart mætti hann vænta liðsinnis úr þeirri átt framar. En hugmynd þessi um leiðangur til Grænlands hafði nú gripið hann svo föstum tökum, að hann mátti ekki til þess hugsa, að ekkert yrði úr framkvæmdum, og er Friðrik IV. brást honum, var ekki um annað að ræða en að leita á náðir annarra þjóðhöfðingja. Sænskur hershöfðingi og fríherra, Gustav Wilhelm Coyet að nafni, dvaldist í Kaupmannahöfn um þessar mundir. Juel komst í kunningsskap við hann, og féll brátt vel á með þeim. Fyrir hann lagði Juel áform sín um Grænlandsleiðangurinn. Fríherra þessurn leizt vel á hugmyndina og aðstoðaði Juel til að ná fundi Svía- konungs. Hann hreifst og af áhuga Juels, en treystist eigi til að hrinda málinu í framkvæmd, því að það myndi óhjákvæmilega hafa í för með sér styrjöld við Dani. En Juel og hinn sænski aðalsmaður, sem nú voru orðnir nánir vinir og bandamenn, vildu ekki hlaupast frá hálfunnu verki og skeyttu lítt hverjar afleiðingar athæfi þeirra gæti haft. Þeim kom því næst til hugar að gefa Pétri mikla kost á að sjá um leiðangurinn og gerðu honum aðvart um, hvað til stæði. Keisari skipaði strax sérstakan fulltrúa sinn til að athuga málið og semja við þá félaga. Maður sá hét Hörling og var aðalsmaður frá Holtsetalandi. Hófust nú umræður um Godasteinn 39

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.