Goðasteinn - 01.09.1971, Síða 7
þar 16000 fjár, auk mikils fjölda hrossa og nautgripa. 4) Að komið
var upp frystihúsi, því fyrsta í Rangárþingi.
Margt fleira væri freistandi að minnast á, en ég læt hér staðar
numið. Hugleiðingum mínum frá þessulm löngu liðnu tímum er
nú að verða lokið að þessu sinni. Ég minnist með aðdáun þraut-
seigju og áhuga margra samvinnumanna í austurhluta Rangárþings
frá þessum árum. Ég nefni hér engin nöfn. Bæði er að of langt
yrði upp að telja og mér vandi á höndum að setja þar mörk,
hverra ætti að geta og hverra ekki.
Fyrir hönd Kaupfélags Hallgeirseyjar vil ég færa Sambandi
íslenzkra samvinnumanna mínar beztu þakkir fyrir allan þann
stuðning og velvilja, sem Kaupfélaginu var sýndur á þessum ár-
um. Persónulega vil ég við þetta tækifæri leyfa mér að færa mín-
um aldna vini Jóni Árnasyni innilegustu þakkir fyrir allan þann
stuðning og góðvild, er hann sýndi mér í erfiðu starfi.
Arftaka Kaupfélags Hallgeirseyjar Kaupfélagi Rangæinga færi
ég beztu árnaðaróskir á 50 ára afmælinu. Megi því ætíð vel vegna.
Á. E.
Kaupfélag Hallgeirseyjar, Stórólfshvoli
Starfsemi Kaupfélags Hallgeirseyjar á flötunum neðan við
Stórólfshvol var lítil í fyrstu, en jókst þó frá því, sem verið hafði
síðustu árin í Hallgeirseyjarhjáleigu. Sumarið 1933 var íbúðarhús
kaupfélagsstjórans flutt frá Hallgeirseyjarhjáleigu og endurbyggt
að Stórólfshvoli. Yfirsmiður við verkið var Guðni Markússon í
Kirkjulækjarkoti og gerði hann á því ýmsar umbætur. Hús þetta
hlaut nafnið Arnarhvoll og stendur enn, svo sem gamla verzlunar-
húsið. Þetta sama ár byggði og bifreiðarstjóri félagsins, Sigurður
Sveinbjörnsson frá Torfastöðum, íbúðarhús sitt þar í grendinni og
nefndi Litla-Hvol. Einnig var lögð vatnsleiðsla til kaupfélags-
húsanna þá um sumarið ofan frá svonefndri Króktúnslind. Var
það gert á kostnað sýslusjóðs, sem átti landið.
En svo var ekki byggt meira í bráð á þessum nýja kaupangi,
er síðar hlaut nafnið Hvolsvöllur. Næst var það sumarið 1937 sem
hafizt var handa. Þá reisti ísleifur Einarsson sér íbúðarhús og
Goðasteinn
5