Goðasteinn - 01.09.1971, Blaðsíða 9
En þeir voru sammála um aö freista þess að halda starfsemi
félagsins áfram, hvað sem í skærist. Veitti það þeim aukinn styrk
í erfiðleikunum, að félagið hafði stórbætt aðstöðu sína til verzl-
unar með flutningnum að Stórólfshvoli jafnframt bættum sam-
göngum um héraðið. Þctta sannaði hraðvaxandi vörusala. Niður-
staðan varð því sú, að stjórnarmenn samþykktu að verja öllum
sjóðum félagsins til að standa straum af skuldatöpum af völdum
kreppunnar jafnframt því sem reynt yrði að komast að samning-
um um hina erfiðu stöðu félagsins gagnvart Sambandi íslenzkra
samvinnufélaga. Var kosin þriggja manna nefnd til suðurgöngu
í því skyni. Einnig var samþykkt að reyna að stuðla að auknu
innlcggi félagsmanna hjá kaupfélaginu með því að taka upp nána
samvinnu við Sláturfélag Suðurlands um slátrun sauðfjár og naut-
gripa, þar sem svo virtist sem þessi félög ættu við svipaða erfið-
leika að etja og sömu aðilar væru keppinautar beggja. Voru
ályktanir þessar lagðar fyrir aðalfund og samþykktar þar. Þá voru
ræddar hugmyndir um að félagsmenn gætu haft nokkurn hagnað
af því að félagið tæki að sér sölu á prjónlesi, þar sem prjónavélar
og einnig spunavélar höfðu verið keyptar á allmarga bæi. Á aðal-
fundi þetta ár kom það fram að vörugeymsluhús félagsins við
Holtsós hafði verið tekið upp og flutt að Seljalandi. Hafði Sigur-
jón Magnússon unnið það verk af mikilli prýði. Þá var Guðjón
Jónsson í Tungu kosinn í aðalstjórn í stað Auðuns Jónssonar og í
stað Guðjóns kom Sigfús Sigurðsson inn í varastjórn.
Á stjórnarfundi snemma árs 1935 lagði framkvæmdastjóri fram
skrá yfir þau töp, sem félagið hafði orðið fyrir af völdum kreppu-
lána og af öðrum ástæðum. Voru það nálega kr. 50000,00. Ekki
hafði tekizt að fá mann til innheimtu, svo sem um hafði verið
rætt, cn framkvæmdastjóri kvaðst sjálfur hafa ferðast um mikinn
hluta félagssvæðisins í því skyni og orðið allvel ágengt, þótt enn
væri víða pottur brotinn. Vörusala hafði aukizt nokkuð og hélt
áfram að vaxa, þótt hægt færi, en staða félagsins var samt sem
áður mjög erfið á þessum árum. Var svo komið í ársbyrjun 1936,
að stjórnarfundur samþykkti, að félagið yrði því aðeins starfrækt
til frambúðar að skuldamálum þess yrði komið í það horf að
lífvænlegt og viðunandi mætti teljast. Mjög var á þessum fundi
Goðasteinn
7