Goðasteinn - 01.09.1971, Blaðsíða 86

Goðasteinn - 01.09.1971, Blaðsíða 86
drengur, sem var hjá okkur. Ég tók mér bók í hönd og fór að lesa upphátt íslendingasögu. Baðstofan var tvö stafgólf, þiljuð með panel, ris, veggir og gaflar. Gólfið var úr timbri, rúmin lausarúm. Olíulampi hékk f vírkrók niður úr risi baðstofunnar. Margrét sat á rúminu vestan við suðurgluggann, en ég sat á rúminu austan við gluggann, og drengurinn sat hjá mér. Ég las, eins og fyrr segir, Margrét spann á rokk en hættir að spinna og segir: „Hvað er að koma fyrir lampann?" Þá er lamp- inn kominn á fleygiferð aftur og fram og til hliðar en ekkert dofnaði ljósið, og áfram hélt lampinn ferli sínum. Ég kenndi um þungu lofti og opnaði baðstofudyrnar en það var sama. Ég stöðv- aði lampann, en það dugði ekki, hann fór af stað aftur en heldur hægar. Þetta mun hafa varað um io mínútur. Fyrir hádegi daginn eftir kom góðvinur minn, Þorsteinn Ingvars- son í Hvammi, góður karl og smáskrýtinn og hafði það til á kvöldvökum heima að standa upp af rúmi sínu og labba að olíu- lampanum og virða fyrir sér ljósið frá öllum hliðum; það gat tekið langan tíma stundum. Það þótti mér undarlegt, hvað krafturinn var mikill í lampan- um að róla sér, ýmist hægt eða hart. Logn og blíða var úti og var því ekki um trekk að ræða, enda hefði þá orðið vart við þetta oftar. Við álitum hér um aðsókn að ræða frá Steina gamla. III Boðuð gestakoma Það bar til árið 1918 í byrjun jólaföstu í Skarðseli um fótaferða- tíma, er við ætluðum að fara að klæðast, að barin voru harkalega þrjú högg í stafngluggann. Við vorum öll, sem í baðstofunni vor- um, vöknuð og heyrðum þetta öll samtímis. Ég þaut út á hlað til að taka á móti gestinum, en hann sást hvergi og ekki spor eftir hann. Nú bjuggumst við ugglauslega við því, að gest bæri að garði bráðlega, en enginn kom allan daginn fyrr en klukkan 9 um kvöld- ið, þá eru lamin þrjú högg í rúðuna, nákvæmlega eins og um morguninn. Og var nú kominn Halldór bróðir minn frá Hvammi á Landi, sem gisti hjá okkur um nóttina. 84 Goðasteinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Goðasteinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.