Goðasteinn - 01.09.1971, Blaðsíða 29

Goðasteinn - 01.09.1971, Blaðsíða 29
Eign Skógasafns í mjólkurtrogum er mikil og góð og þó ekki meiri en svo að rétt myndi nægja stórbúi fyrri tíma. í þessari trogaeign eru beztu fulltrúar mjólkurtroga, scm völ er á á landi hér. Á annan gafl í trogi Laufeyjar Pálsdóttur á Fossi á Síðu er ártal letrað stórum stöfum: 1821, og geri önnur trog betur. Neð- an á mjólkurtrog frá Blómsturvöllum í Fljótshverfi cr ietrað krossmark. Mjólkurtrog Þuríðar Pálsdóttur á Herjólfsstöðum í Álftaveri á þá frægð að hafa lent í Kötlugosinu 1918. Það fannst í jakahrönn eftir hlaupið. Frá Arnarhóli í Landeyjum er trog Þorgerðar Brandsdóttur í Gerðum með fangamarki hennar á botni: Th. B. Það er dmíðað af manni hennar, Ólafi Einarssyni í Gerðum, nálægt miðri 19. öld, ólíkt öðrum trogum að hlutföllum, nær réttur ferhyrningur. Ólafur var frcmsti ílátasmiður Landeyinga á þeim tíma. Eftir hann á bvggðasafnið einnig fjórar trégirtar mjólkurbyttur, og jafnoka þeirra mun óvíða að finna á söfnum. Eitt bezta mjólkurtrog Skógasafns er smíðað af Hjörleifi Vig- fússyni á Syðstu-Grund undir Eyjafjöllum um 1830 í bú sr. Þor- valds Böðvarssonar í Holti undir Eyjafjöllum og ber fangamark hans á gafli, Th. Hjörleifur var orðlagður snillingur í öllum smíð- um. Um trog Gróu í Selkoti hefur áður verið getið og merkingu þess, og flciri merkt trog finnast í safninu. Á seinni hiuta 19. aldar gerist það, að menn taka að bora gat á trogsgafla til að auðvelda konum starfið við að renna trogi, en aldrei varð það algengt. Þetta er runnið frá byttunum, sem allar voru með gati til að renna um undanrennunni, en þær virðast ko/mnar í notkun sums staðar um miðja 19. öld. Skógasafn á tvö trog með götum á gafli. Annað þeirra (frá Lambhaga á Rangár- völlum) er þesslegt að formi, að það mun gert til þess að renna að gömlum hætti og gatið borað á síðar. Hitt trogið (frá Hlíð undir Eyjafjöllum) er það breitt, miðað við lengd, að óþægilegt hefur verið fyrir konu að renna því með gamla laginu, og því ætla ég, að það sé gert til þess að renna með nýjum hætti. Eitt trog Skógasafns á algera sérstöðu hvað stærð snertir. Það er óvenju lítið og gat auðvitað hentað til þess að setja mjólk upp í, þegar leið að því, að kýrnar hættu að draga ljóst. Þetta trog Goðastehm 27
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Goðasteinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.