Goðasteinn - 01.09.1971, Page 16

Goðasteinn - 01.09.1971, Page 16
Eyjólfur Eyjólfsson á Hnausum: Stefán Ingimundarson hreppst)óri á Rofabæ Á þessu ári (1971) er aldarafmæli Stefáns hreppstjóra og bónda á Rofabæ í Meðallandi. Hann fæddist að Oddum (sem nú er eyðijörð) í sömu sveit 7. júní 1871, og voru foreldrar hans þau hjónin Ragnhildur Þorsteinsdóttir frá Núpum í Fljótshverfi og Ingimundur hreppstjóri Eiríksson, ættaður úr þessari byggð, a. m. k. í næstu ættliði. Þau fluttust frá Oddum að Rofabæ, er Stefán var barn að aldri. Börn þeirra hjóna, þau er upp komust, voru 3 að tölu, og var Stefán þeirra yngstur, en hin voru Agnes (elzt) og Þórey. Lézt Stefán fyrir aldur fram, tæplega filmmtugur, árið 1919; en Agnes, sem lifði hin bæði, 1954. Þau Ingimundur og Ragnhildur hreyfðu sig ekki til búsetu eftir að til Rofabæjar kom, enda var hann þar fæddur, og þar höfðu skyldmenni hans áður verið; þar ólust börn þeirra hjóna upp við venjulegar kringumstæður og fengu þar sinn þroska. Þegar Stefán var 16 vetra, fór hann, eins og margra manna var háttur, þá og 14 Goðasteinn

x

Goðasteinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Goðasteinn
https://timarit.is/publication/1897

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.