Goðasteinn - 01.09.1971, Page 30
Mjólkurtrog Gróu Arnoddsdóttur.
Ljósm. Vigfús L. Friðriksson.
cr úr búi Ólafar Gísladóttur í Gröf í Skaftártungu. Innanmál þess
við botn er 28,5x17 cm og við barm 37x29 cm. Til samanburðar
rná taka Hjörleifstrogið frá Holti, scm er 35x20 cm við botn og
48x39 cm við barm og má teljast fulltrúi fyrir meðaltrog, þó held-
ur í stærra lagi.
Enginn nefnandi grundvallarmunur cr á smíði gamalla troga að
öðru en stærð. Flái hliða og gafla er áþekkur á þeim öllum, og
svipuðu máli gegnir um dýpt og hlutföll lengdar og breiddar. Á
llestum trogum munu hliðar hafa náð ögn niður fyrir botn, en
siit áranna liefur oft eytt þeim mun.
Nokkurt vandaverk hefur verið að smíða gott, mathelt trog,
en þar hefur líka vaninn skapað listina. Ákveðin snið réðu stærð
gafla og hliða og þeim fláum, sem gerðu réttan halla. Botnendar
náðu jafnan nokkuð út fyrir neðri brún gafls og hliðar lágu þar
frá með bogadreginni eða beinni iínu upp á trogshorn. Æfður
trogasmiður þurfti engar fyrirmyndir í smíði, hugsun hans og
glöggt auga gerðu starfið að leik.
28
Goðasteinn