Goðasteinn - 01.06.1983, Side 91
löngu, uns lent var á flugvelli skammt frá Rönne og þar
með hófst þetta ævintýri, sem var að fá að kynnast þessu
fagra og sérstæða, en nokkuð einangraða eylandi Dana-
veldis.
Borgundarhólmur er 588 ferldlómetrar að flatarmáli
og þar með hin fimmta af dönsku eyjunum að stærð.
Aðeins Sjáland, norðurjóska eyjan, Fjón og Láland eru
stærri. Undirstöðuberg eyjarinnar er granít og gneis líkt
og í Svíþjóð og Noregi og því allt öðruvísi en á öðrum
dönskum eyjum, þar sem lcalk, sandur og leir eru alls-
ráðandi. Að lögun er eyjan eins og talsvert skeklctur fer-
hyrningur, strendur víða sæbrattar, talsvert vogskornar
og hömrum girtar hér og þar. En hið efra á eyjunni er
hæðótt flatlendi sem víða nær um og yfir hundrað metra
hæð yfir sjó. Flæsti tindurinn rís upp í 162 metra hæð
og er það alls ekki svo lítið á danskan mælikvarða.
Mestur hluti Borgundarhólms er gróið land, þar sem
skiptast á akrar og skógar, mýrar og móar, tún og engi.
þar eru einnig stöðuvötn, tjarnir og lækir, en varla er
hægt að segja að þar finnist ár, þótt heimamenn vilji
telja svo. Loks er þar að finna klappir með fornum hellu-
ristum, ýmis konar bautasteina og grafarhauga frá löngu
liðnum öldum og margt fleira. Á 19. öld hafði fornum
skógum eyjarinnar verið eytt að mestu, en þá hófust
íbúarnir handa við að rækta nýja skóga og tókst svo vel
að nú eru yfir hundrað ferldlómetrar eða um 20% lands-
ins vaxin hinum ágætasta nytjaskógi.
íbúar Borgundarhólms eru tæplega 50 þúsund og hef-
ur svo haldist nokkuð lengi. Um helmingur þeirra á
heima í bæjunum Rönne, Nexö, Flasle og Svaneke. Rönne
er með um 15 þúsund íbúa eða áþekk Akureyri að stærð.
Höfuðatvinnuvegir landsmanna eru frá fornu fari land-
búnaður og fiskiveiðar. Iðnaður hefur löngum verið tals-
verður og hafa menn til dæmis framleitt þar byggingar-
efni margs konar, eins og múrsteina og fleira. Pá hafa
Borgundarhólmarar getið sér mikið orð hin síðari ár
Goðasteinn
89