Goðasteinn - 01.06.1986, Blaðsíða 36
þá líklegast að Ari fróði hafi haldið þar á penna, nema ef svo væri
að formáli og fyrstu kaflar Landnámu séu verk Sæmundar, en sá er
síðast ritaði það upp aðeins talið ástæðu til að geta þess að þetta
væri frá honum komið.
Eflaust hafa verið margir fróðir menn hér á landi á 11. og 12. öld,
en ekki er mér kunnugt um nema þrjá, sem bera kenningarnafnið
fróði. Um Ara fróða er það vitað að hann reit íslendingabók, en um
Styrmi að hann ritaði hluta Landnámu. Sæmundur mun hafa verið
lærðastur þessara þriggja manna, en ekki er vitað um neitt varðveitt
rit frá hans hendi. Sæmundur og Ari voru samtímamenn og ekkert
því til fyrirstöðu að það sem Ari hefur eftir honum um að Ólafur
Tryggvason hafi fallið sama árið og kristni var lögtekin, geti hafa
verið munnleg frásögn, en eins líklegt er þó að Ari hafi haft fyrir
sér bókarkorn sem Sæmundur hafði skrifað.
En í Konungsannál er tilvitnun, sem virðist taka af allan vafa um
að á 14. öld var til rit frá hendi Sæmundar, en þar segir við árið
1047: „Svá segir Sæmundr prestr inn fróði, at á þessu ári váru svá
mikil frost, at vargar runnu at ísi milli Nóregs ok Danmarkar”. Sami
annáll telur Sæmund fæddan níu árum síðar (1056) og mátti hann
því vel hafa þetta beint eftir mönnum, sem voru vel til aldurs komnir
þennan umrædda vetur. Þessi málsgrein getur ekki þýtt annað en
að höfundur Konungs-annáls hafi haft fyrir sér eitthvað, sem
Sæmundur hafði skrifað, en óvíst mun hvort það hefur verið í
annálsformi eða í ætt við Landnámu.
Sæmundur hefur farið ungur utan til náms, því bæði Konungs-
annáll og Lögmannsannáll telja að hann hafi komið aftur þegar
hann var tvítugur, þó þeim beri ekki saman um árið. Ólíklegt er þó
að hann hafi ekki fengið einhverja undirbúningsmenntun áður en
hann fór og má telja líklegt að hann hafi um tíma notið tilsagnar
ísleifs biskups. ísleifur var fæddur 1006 fór að vísu mjög ungur
utan til náms, en trúlegt er þó að hann hafi í æsku heyrt föður sinn
og frændfólk segja frá atburðum, og margt fólk hefur verið á lífi
þegar hann kom frá námi, sem mundi heiðinn tíma. Sæmundur
hefur því getað fengið frá honum og hans jafnöldrum áreiðanlega
vitneskju um margt það sem gerðist á 10. öld og ljósar sagnir um
margt frá þeirri níundu.
34
Goðasteinn