Goðasteinn - 01.06.1986, Page 62
Árni Kr. Sigurðsson:
Af blöðum
r
Arna á
Bjarkarlandi
Hratt flýgur stund. Fólkið sem setti svip á sveit mína, Vestur-
Eyjafjöll, á æskuárum mínum er flest horfið á braut. Einn hug-
þekkasti maður í minningum er Árni Kr. Sigurðsson á Bjarkarlandi,
fæddur í Steinmóðarbæ 20. des. 1902, sonur Sigurðar Árnasonar
bónda þar og konu hans Ingibjargar Árnadóttur, alinn upp við
menningu, gestrisni og góða verkhætti utan bæjar og innan. Blæ
þess bar Árni til hinstu stundar. Hann var að námi í fyrsta
nemendahópi Laugarvatnsskóla og gerðist fórnfús forystumaður í
ungmennafélagi sveitar sinnar, Umf. Trausta sem vann það afrek,
rétt með tvær hendur tómar, að byggja félagsheimilið Heimaland
er vígt var 1927.
Árni naut þeirrar hamingju í lífinu að eignast góða konu, Ingi-
björgu ísleifu Jónsdóttur frá Borgareyrum. Saman reistu þau ný-
býlið Bjarkarland árið 1933 af litlum efnum, en mikilli bjartsýni og
gerðu um það er lauk af eigin dugnaði og siðar atorku sona sinna
að höfuðbóli, vel hýstu og með víðum túnvöllum. Utan heimilis
vann Árni lengi gott verk hjá Vegagerð ríkisins, einkum við boranir
og sprengingar og var mikils virtur af yfirmönnum sínum, enda fór
saman hjá honum mikill dugnaður og umgengni til fyrirmyndar.
„Ljúfleiki yðar sé öllum kunnur” segir í helgri bók og ljúfleiki Árna
á Bjarkarlandi var öllum kunnur. Mikill var hann unnandi ljóða og
söngs og lengi söng hann fagran tenór í Kirkjukór Dalskirkju. Hans
60
Goðasteinn