Goðasteinn - 01.06.1986, Side 63
er gott að minnast. Árni dó 11. nóv. 1983. Goðasteinn vill eiga þátt
í því að minna á það að Árni á Bjarkalandi „reis ekki þögull frá
dísanna borði”.
Á 50 ára afmæli
Laugarvatnsskóla 1. nóv. 1978
Góði skólastjóri, skólasystkin, nemendur og aðrir gestir! Það var
bjart í hug okkar og sál þessara fyrstu nemenda á Laugarvatni þann
1. nóv. 1928, á þessum stað sem eigendur og ábúendur Ingunn
Eyjólfsdóttir og Böðvar Magnússon, gáfu þjóð sinni, þá stærstu og
veglegustu gjöf, sem nokkur íslensk hjón hafa gefið þjóð sinni. Hér
var því létt að ganga um hlöð, allt frjálst og ekkert talið eftir.
Hér var fagurt um að litast, að vísu öðruvísi en í sveitinni minni
með sína hrikalegu hamra, háu fossa og fannhvíta jökulkórónu á
hæsta tindi, en fagurt eigi að síður, skógivaxnar hlíðar með
mildum, bogadregnum línum og hverinn minnti á heita hjartað,
sem undir slær, og þá auðlegð sem í þvi býr. Vatnið minnti á kyrrð-
ina og friðinn, en skógurinn á ljóssækni lífsins.
Þá kemur næst að skólastjóranum sr. Jakobi Ó. Lárussyni,
þessum eldheita æskulýðs- og ættjarðarvini, slíku hef ég ekki
kynnst fyrr eða síðar. Það voru stórir hlutir sem hann ætlaði að gera
fyrir æskuna, hann vissi að þar bjó leyndur máttur sem þurfti að
virkja.
Næst minnist ég Guðmundar Ólafssonar kennara, sem var
fæddur kennari og gat látið steina tala, sá indæli maður. Þá eru
ljúfar minningar með Magnúsi Böðvarssyni við að móta steina í
stærri og meiri byggingar fyrir skólann. Hans ljúfa og glaða viðmót
er mér minnisstætt. Þá var oft glatt á hjalla um matartímann hjá
Aðalbjörgu Haraldsdóttur. Síðast minnist ég allra minna góðu
skólasystkina fyrir ánægjuríka samveru. Þakka öllu þessu góða
fólki lífs og liðnu fyrir birtuna sem það veitti á lífsleið mína.
Allra siðast þakka ég hinum ágæta skólastjóra Benedikt
Sigvaldasyni fyrir það að bjóða mér að vera hér mættur á þessari
ánægjulegu stund sem ég mun lengi minnast.
Goðasteinn
61